Sigríður Ósk Kristjánsdóttir




























Pétur Gautur













Ólöf K. Sigurðardóttir

Þriðjudag 7. febrúar - Hádegistónleikar
Sigríður Ósk Kristjánsdóttir
Sigríður Ósk Kristjánsdóttir verður fyrsti gesturinn á Hádegistónleikum Hafnarborgar á nýju ári. Á dagskránni verða buxnarullu aríur og íslensk vögguljóð. Buxnarullu aríur eru lög þar sem söngkonur klæðast buxum og syngja hlutverk ungra stráka. Húsið opnar kl. 11:30 og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir en engin aðgangseyrir er á Hádeigistónleika Hafnarborgar.















Föstudaginn 10. febrúar kl. 19 - 24 - Dagskrá Safnanætur 2012
Magnað myrkur
Hafnarborg verður með fjölbreytta dagskrá á Safnanótt í ár. En Safnanótt er haldin í áttunda sinn og er hluti af Vetrarhátíð. Í boði verða viðburðir fyrir gesti á öllum aldri fram undir miðnætti og allir viðburðirnir eru ókeypis. Meðal viðburða má nefna risavörpun á útvegg Hafnarborgar þar sem sýnt verður videoverk eftir listamanninn Andrew Burgess, Kyrralífssmiðja í betri stofum Hafnarborgar fyrir alla fjölskylduna undir handleiðslu Péturs Gauts listmálara, sýningastjóraspjall og margt margt fleira. Í lok kvöldins mun Sigríður Thorlacius stíga á stokk ásamt Ómari Guðjónssyni gítarleikara og Guðmundi Óskari Guðmundssyni bassaleikara í veitingasölu Hafnarborgar og flytja ný og gömul lög. Við bendum á að sérstakur safnanæturstrætó gengur á milli safnanna og auðveldar gestum að heimsækja fjölmörg söfn á einu kvöldi. Ekki gleyma safnanæturleiknum! veglegir vinningar i boði.
Hægt er að lesa fulla dagskrá hér.







Námskeið í Hafnarborg - Leiðbeinandi Pétur Gautur
Kyrralíf málað og teiknað
Námskeiðið Kyrralíf málað og teiknað fer fram í Hafnarborg og verða alls fjögur skipti, en leiðbeinandi er Pétur Gautur listamaður. Námskeiðið fer fram frá 26. janúar - 4. febrúar. Þátttakendur fá tækifæri til að vinna út frá mörgum af perlum íslenskrar listasögu sem eru til sýnis á sýningunni Kyrralíf sem nú stendur yfir í Hafnarborg (nánar hér).  Þetta er kjörin leið til að fara dýpra í efnið út frá leiðsögn og auka skilning sinn og færni í listmálun. Engar kröfur eru gerðar til þátttakenda á námskeiðunum. En gert er ráð fyrir að þátttakendur komi með liti og pensla. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður og námskeiðsgjald er 22.000 kr. Nánari upplýsingar um námskeiðið hér.










Sunnudag 12. febrúar kl. 15 - Sýningastjóraspjall
Kyrralíf
Á sýningunni Kyrralíf er athyglinni beint að kyrralífsmyndum eftir íslenska listamenn og þeirri glímu við form og liti sem þetta listform felur í sér. Annar sýningastjórinn Ólöf K. Sigurðardóttir mun ræða við gesti um sýninguna sunnudaginn 15. janúar kl. 15.
Fjöldi verka er á sýningunni eftir ólíkar kynslóðir listamanna sem sumir eru þekktir fyrir verk annarrar gerðar. Sýnd eru verk úr safneign hafnarborgar en einnig verk sem fengin eru að láni hjá söfnurum. Sýningastjórar eru Ólöf K. Sigurðardóttir og Þorbjörg Br. Gunnarsdóttir. Engin aðgangseyrir og spjallið er opið öllum. 











 


 





 










Heim

Heim
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is