mynd tengd atburði: Tríó Reykjavík - Klassík við kertaljós
28. nóvember - 28. nóvember 2010  kl. 20

Tríó Reykjavík - Klassík við kertaljós

Klassík við kertaljós tónleikar Tríós Reykjavíkur er fastur liður í tónleikaröð þeirra í Hafnarborg. Þau ætla að flytja verk eftir Chopin og heiðra hann á 200 ára afmæli hans. Gestur þeirra í kvöld er pólska söngkonan Alina Dubik. Miðaverð er 2.400 kr og miðasala er í Hafnarborg.

Alina Dubik lauk masterspróf  frá Tónlistarháskólanum í Gdansk í Póllandi árið 1985 eftir að hafa stundað nám hjá prófessor Barböru Iglikowsku. Í framhaldi af því var henni boðið að syngja með Óperunni í Kraká og ferðaðist hún víða um heim með óperuhópnum. Alina var fyrsti mezzósópran óperuhússins allt þar til hún fluttist til Íslands. Hún hefur komið fram sem einsöngvari í Þýskalandi, Lúxemborg, Ítalíu, Frakklandi, Bandaríkjunum, Sviss og jafnframt á tónleikum víða um Ísland. Á meðal hlutverka hennar á óperusviðinu eru Carmen eftir Bizet, Xerxes eftir Händel og Orfeus eftir Glück . Hún hefur sungið hlutverk hjá Íslensku óperunni komið fram með Sinfóniuhljómsveit Íslands í óperuuppfærslunni á Othello eftir Verdi, Requiem eftir Mozart, Messías eftir Händel, Elía eftir Mendelsohn, 9. sinfóníu Beethovens og í Kindertotenlieder eftir Mahler. Á meðal einsöngshlutverka eru La petite messe solennelle eftir Rossini, Krýningarmessa Mozarts og Mozart Messa í C- dúr K 317. Alina fór með hlutverk þriðju dömu í uppfærslu Íslensku óperunnar á Töfraflautunni eftir Mozart 1991 og mömmu Luciu í Cavalleria Rusticana eftir Mascagni árið 2008. Fyrir það hlutverk var hún tilnefnd til Grímunnar árið 2009. Alina hefur haldið fjölda, ljóða- og kammertónleika hér á landi og m.a flutt ljóðasöngva eftir Fauré, Tsjajkovskíj, Karlowicz, Schostakovitch, Poulenc, Rimskíj-Korsakov, Borodin, Rachmaninov og Glinka. Einnig Sígaunaljóð og Vier letzte Gesange eftir Brahms, og Söngva og dansa dauðans eftir M. Mussorgsky. Alina Dubik er starfandi söngkona á Íslandi og er jafnframt söngkennari við Nýja tónlistarskólann og Tónlistarskólann í Reykjavík

Heim

Heim
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is