16. janúar - 16. janúar 2011 kl. 20
Tríó Reykjavík - Nýárstónleikar
Nýárstónleikar Tríós Reykjavíkur eru samansettir af skemmtidagskrá með Vínar - og sígaunatónlist eins og hún gerist best. Sérstakur gestur þeirra verður mezzósópransönkonan Anna Sigríður Helgadóttir. Miðaverð er 2.400 kr og hægt er að kaupa miða í Hafnarborg í síma 585 5790. Einnig er hægt að kaup áskriftarkort en þau kosta 7.500 kr.
Anna Sigríður Helgadóttir söngkona er fædd í Reykjavík þann 1. ágúst,1963. Hún stundaði söngnám við Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar og Söngskólann í Reykjavík, þaðan sem hún lauk námi við framhaldsdeild árið 1989. Næstu þrjú árin sótti hún einkatíma hjá Prof. Rina Malatrasi á Ítalíu. Árin1993 – 1995 var hún ráðin sem söngkennari við Tónlistarskólann á Sauðárkróki. Hún hefur sungið með fjölda kóra og tekið þátt í margskonar tónlistarflutningi, s.s. einsöngstónleikum, djasstónleikum, óperu- og óperettuuppfærslum, kirkjutónleikum, gospeltónleikum o.fl., á Íslandi, í Danmörku, Svíþjóð, Bandaríkjunum, á Ítalíu og víðar. Í febrúar árið 2000 tók hún þátt í uppfærslu Íslensku Óperunnar á óperunni “ The rape of Lucretia” eftir Benjamin Britten, þar sem hún söng hlutverk Biöncu og í maí árið 2002 söng hún hlutverk Mary í "Der Fliegende Holländer" eftir Richard Wagner en það var sett upp í Þjóðleikhúsinu. Hún söng í mörg ár með sönghópnum Hljómeyki, er ein af söng-hópnum "Emil og Anna Sigga" og einnig Bjargræðiskvartettinum/tríóinu. Í mörg ár hefur hún komið fram á alls konar tónleikum og skemmtunum ásamt vinkonu sinni og píanistanum Aðalheiði Þorsteinsdóttur en þær hafa einnig unnið mikið saman í kirkjum landsins. Haustið 2001 var Anna Sigríður ráðin sem tónlistarstjóri við Fríkirkjuna í Reykjavík ásamt Carli Möller, þar sem hún syngur og stjórnar kór og hefur umsjón með sönglífinu í kirkjunni. Í mars 2005 var Önnu Sigríði boðið að syngja á bókmenntahátíð í Charlotte í Norður Karolínu, í Bandaríkjunum, og í þeirri ferð hélt hún einnig tónleika á vegum sendiherra Íslands í Washington, herra Helga Ágústssonar og konu hans, Hebu Jónasdóttur. Vorið 2009 lauk hún kórstjórnarprófi frá Tónskóla þjóðkirkjunnar.