07. febrúar - 07. febrúar 2012 kl. 12
Hádegistónleikar - Strákadraumar
Sigríður Ósk Kristjánsdóttir verður fyrsti gesturinn á Hádegistónleikum Hafnarborgar á nýju ári. Á dagskránni verða buxnarullu aríur og íslensk vögguljóð. Buxnarullu aríur eru lög þar sem söngkonur klæðast buxum og syngja hlutverk ungra stráka.
Sigríður nam óperusöng við óperudeildina í Royal College of Music í London. Hún hlaut Artist Diploma 2008 og meistaragráðu í tónlist árið 2009. Sigríður hefur sungið ýmsar óratoríur þar má nefna; Magnificat eftir Vivaldi, Jóhannesarpassíunna eftir Bach, Requiem eftir Fauré og var einsöngvari í 4. sinfóníu Mahlers í Royal College of Music. Sigríður mun syngja í óperunni Jakob Lenz með English National Opera í London í vor. Tónleikarnir standa yfir í um hálfa klukkustund og eru ölllum opnir á meðan húsrúm leyfir. Listrænn stjórnandi er eins og áður Antonia Hevesi.