Hafnarborg, hefur frá í ágúst 2003 staðið fyrir tónleikum í hádegi einu sinni í mánuði. Tónleikarnir standa yfir í um hálfa klukkustund og eru hugsaðir sem tækifæri fyrir fólk í Hafnarfirði til að njóta góðrar tónlistar í hádegishléi. Tónleikarnir eru í boði Hafnarborgar enginn aðgangseyrir, öllum opnir á meðan húsrúm leyfir. Tónleikarnir eru ávalt haldnir fyrsta þriðjudag hvers mánaðar.


Frá upphafi hefur Antoníu Hevesi píanóleikara verið listrænn stjórnandi tónleikaraðarinnar og velur hún þá listamenn sem fram koma á tónleikunum. Antonía Hevesi er fædd í Ungverjalandi. Hún útskrifaðist árið 1988 úr F.Liszt Tónlistarakademíunni í Búdapest með Mastersgráðu (MA) í kórstjórn og sem framhaldsskólakennari í söng-og hljómfræði. Frá árinu 1990 stundaði hún orgelnám í Austurríki við Tónlistarháskólann í Graz hjá org. Prof.Otto Bruckner. Antonía fluttist til Íslands árið 1992 og frá því í september 2001 hefur hún verið búsett í Hafnarfirði.


Antonía hefur haldið fjölda tónleika sem orgelleikari og píanó-meðleikari í Ungverjalandi, Austurríki, Svíþjóð, Finnlandi, Frakklandi, Þýskalandi, Spáni, Bretlandi, Kanada og á Íslandi. Hún hefur tekið þátt í masterklass námskeiðum m.a í píanóundirleik hjá Dalton Baldwin og í söng hjá Lorraine Nubar og Oliveru Miljakovic og spilað inn á geisladiska. Frá því í ágúst 2003 hefur Antonía verið listrænn stjórnandi og píanóleikari hádegistónleikaraðar Hafnarborgar, menningar- og lista­stofnunar Hafnafjarðar. Antonía starfar nú sem orgel- og píanómeðleikari og æfingarpíanisti við Íslensku Óperuna.



Hádegistónleikar haust 2011:


Þriðjudagur 4. október:
Erla Björg og Rannveig Káradætur sópran     
        

Þriðjudagur 1. nóvember:
Jóhanna Ósk Valsdóttir mezzósópran


Þriðjudagur 6. desember:
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran 


Hádegistónleikar vor 2012:


Þriðjudagur 7. febrúar: 
Sigríður Ósk mezzósópran


Þriðjudagur 6. mars:
Ágúst Ólafsson barítón


Þriðjudagur 3. apríl: 
Hörn Hrafnsdóttir mezzósópran


Þriðjudagur 5. júní: 
Hrólfur Sæmundsson bariton

 


Heim

Heim
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is