mynd tengd atburði: Hádegistónleikar-Af hjartans list
09. október - 09. október 2008  Anonia Hevesi ásamt Sólrúnu Braga

Hádegistónleikar-Af hjartans list

Sólrún Bragadóttir stundaði söngnám við Tónlistarskólann í Kópavogi og síðar við Tónlistarskólann í Reykjavík undir handleiðslu Elísabetar Erlingsdóttur, áður en hún hélt til frekara tónlistarnáms við háskólann í Bloomington, Indiana í USA. Þar lauk hún bæði Bacheleur og Mastergráðu í einsöng og til söngkennara með háum vitnisburði. Meðal kennara hennar þar var hin fræga rúmanska söngkona Virginia Zeani.

Strax að námi loknu fékk hún starf sem fyrsti lýríski sópraninn við leikhúsið í Kaiserslautern í Þýskalandi, þar sem hún söng mörg aðalhlutverk næstu þrjú árin. Því næst fékk Sólrún sólistastöðu við Óperuhúsið í Hannover þar sem hún söng fjöldann allan af aðalhlutverkum jafnframt því að syngja gestahlutverk við hin ýmsu óperuhús Evrópu. Þar á meðal í Duesseldorf, Mannheim, Statsoper í Muenchen, Karlsruhe, Kiel,Belfast, Bern, Liége, Avignon og mörgum fleiri.


Meðal aðalhlutverka Sólrúnar má nefna Mimi í La Bohéme, Liú í Turandot, Suor Angelica i samnefndri óperu, Desdemona í Verdis Otello, Elisabet í Don Carlo, Gilda í Rigoletto, Greifafrúin í Brúðkaupi Fígarós, Pamina í Töfraflautunni, Fiordiligi í Cosí fan tutte, Donna Anna í Don Giovanni, Elettra i Idomeneo, Antonia úr Ævintýrum Hoffmanns, Michaela í Carmen, Martha úr samnefndri óperu eftir Flotow, Marie úr Seldu Brúðinni, Margarite í Faust (konsertuppfærsla), Leonora í Fídelíó, (konsertuppfærsla) og mörg fleiri.

Sólrún hefur alla tíð verið virkur sólisti með hljómsveitum. Hún hefur m.a. margoft sungið með Sinfóníuhljómsveit Íslands, með NDR hljómsveitinni í Hannover, RAI hljómsveitinni í Torino, Symphony Orchestra in Zielona Góra, óperuhljómsveitinni í Hannover, í Tívolí Koncertsal og Salle Playel í París. Verkefnin með hljómsveitunum hafa verið margs konar; allt frá Vínartónlist, aríu- og óperettuprógrömmum, óperuuppfærslum og söngleikjatónlist til óratoríuuppfærslna.

Ljóðasöngur hefur alla tíð verið stór þáttur á listferli Sólrúnar og hún sungið fjöldan allan af ljóðatónleikum víða um heim. Undanfarin ár hefur Sólrún þróað sinn eigin a capella söngstíl og komið víða fram á all kyns uppákomum. Þar á meðal á sýningu á verkum Ólafs Elíassonar og Jóhannes Kjarval, Lavaland, vorið 2007. Árið 2005 myndaði Sólrún dúó með saxafónleikaranum Sigurði Flosasyni sem hefur gefið út skífu með íslenskum sönglögum þar sem nýju ljósi er varpað á klassísk sönglög. Hún hefur einnig nýlega stofnað dúó með þýska gítarleikaranum Peter Korbel og munu þau hefja samstarfið með tónleikaferð um Evrópu á næsta ári.
Sólrún gerði einnig nýjan samning við óperuna í Palm Beach í Florida og mun fara þar með hlutverk Greifafrúarinnar í Brúðkaupi Fígarós. Um þessar mundir syngur hlutverk Neddu i I Pagilacci í Íslensku Óperunni.

Nánari upplýsingar veittar í Hafnarborg í síma 585 5790.

 


    
 
   
 


Heim

Heim
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is