29. mars - 29. mars 2009 kl. 15 í kaffistofu
Síðdegisdjass
Næstkomandi sunnudag kl. 15 munu tónlistarmennirnir Egill Ólafsson, söngur, Björn Thoroddsen á gítar og Jón Rafnsson á kontrabassa hafa tónleika í kaffistofu Hafnarborgar sem er rekin af Manni lifandi. Björn, Egill og Jón hafa sett saman dagskrá er samanstendur af þekktum erlendum djassperlum ásamt vel völdum íslenskum dægurlögum.
Tónleikarnir eru samvinna Hafnarborgar og Manns lifandi og er hugmyndin að mynda notalega kaffihúsastemmingu á sunnudagseftirmiðdegi þar sem fara saman topp tónlistarmenn og úrvalsveitingar. Tónleikarnir eru síðasta sunnudag hvers mánaðar og meðal listamanna sem koma fram í djasstónleikaröðinni næstu sunnudaga eru Andrea Gylfadóttir, Guðmundur Steingrímsson (Papa Jazz), Sigurður Flosason ofl.
Ókeypis aðgangur.