mynd tengd atburði: Síðdegisdjass - Bláir Skuggar
26. apríl - 26. apríl 2009  kl. 15 í kaffistofu

Síðdegisdjass - Bláir Skuggar

Næstkomandi sunnudag mun síðdegisdjassinn halda áfram í Hafnarborg í samstarfi við Mann lifandi. Bláir skuggar er jazz/blús kvartett saxófónleikarans Sigurðar Flosasonar. Þetta er  nokkurskonar „súpergrúppa“ í íslenskum jazzi, en auk Sigurðar skipa kvartettinn þjóðsagnapersónur í íslenskri tónlist og framverðir elstu starfandi kynslóðar íslenskra jazztónlistarmanna, þeir Þórir Baldursson á Hammond orgel, Jón Páll Bjarnason á gítar og Pétur Östlund á trommur. Tónlistin sem Bláir skuggar flytja er aðgengilegur og skemmtilegur samruni jazz- og blús tónlistar þar sem spilagleði er í fyrirrúmi. Hljómsveitin hefur sent frá sér tvo geisladiska; Bláa skugga (2007) og Blátt ljós (2008), sem báðir hafa fengið frábæra dóma. Þess má geta að Sigurður Flosason hlaut íslensku tónlistarverðlaunin sem jazztónlistarflytjandi ársins þegar þegar fyrri diskurinn kom út. Tónleikarnir eru ókeypis og er hugmyndin að mynda notalega kaffihúsastemmingu á sunnudagseftirmiðdegi þar sem fara saman topp tónlistarmenn og úrvalsveitingar.
Meðal listamanna sem koma fram í maí eru Andrea Gylfadóttir, Jón Rafnsson og Guðmundur Steingrímsson aka Papa Jazz.

Hafnarborg er opin alla daga nema þriðjudaga 11-17, fimmtudaga 11-21. Ókeypis aðgangur meðan húsrúm leyfir.

Sigurður hefur verið atkvæðamikill í íslensku jazzlífi undanfarin ár. Hann hefur gefið út fjóra geisladiska í eigin nafni: Gengið á lagið 1993, Gengið á hljóðið 1996, Himnastigann 1999 og Djúpið 2001. Fyrri tveir diskarnir innihalda frumsamdar tónsmíðar, en síðari tveir þekkt jazzlög. Nýjustu hljóðritanir hans, Raddir þjóðar 2002 með Pétri Grétarssyni og Stikur 2003 með Jóel Pálssyni, eru tilraunakenndar. Ásamt Gunnari Gunnarssyni organista hefur hann sent frá sér geisladiskana Sálma lífsins 2000 og Sálma jólanna 2001. Sigurður hefur tekið þátt í mörgum fjölþjóðlegum samstarfsverkefnum og leikið talsvert erlendis. Hér á landi hefur hann starfað með ýmsum hljómsveitum við flestar gerðir tónlistar, verið ötull við tónleikahald, leikið inn á geisladiska ólíkra listamanna og starfað í leikhúsum, auk ýmissa félags- og stjórnunarstarfa tengdum tónlist. Sigurður hefur tvisvar verið kjörinn jazzleikari ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum og tvívegis verið tilnefndur til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs.

 


Heim

Heim
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is