Kvennakórinn Vox feminae verður með tónleika í Hafnarborg í kvöld. Kórinn var stofnaður árið 1993 af Margréti J. Pálmadóttur og hefur starfað undir stjórn hennar æ síðan. Kórinn hefur haldið sjálfstæða tónleika einu sinni til sex sinnum á ári og farið í tónleikaferðir bæði innanlands og utan. Kórinn hefur sungið með Sinfoníuhljómsveit Íslands og Alba-hópnum og tók einnig þátt í Kristnitökuhátíð á Þingvöllum. Í kórnum starfa að jafnaði 40 konur. Í nóvember 2000 vann kórinn til silfurverðlauna í VIII. alþjóðlegu kórakeppni í flutningi trúarlegrar tónlistar, keppni sem kennd er við tónskáldið Palestrina og haldin er í Vatikaninu í Róm.
Trúarleg tónlist ásamt íslenskum þjóðlögum og sönglögum hefur einkennt lagaprógram kórsins. Kórinn gaf út geisladiskinn “Mamma geymir gullin þín” árið 2000 með íslenskum sönglögum og þjóðlögum og árið 2003 gaf kórinn út geisladiskinn “Himnadrottning” (Regina Coeli) með trúarlegri tónlist m.a. eftir Brahms, Hjálmar Ragnarsson, Þorkel Sigurbjörnsson, Palestrina, Orlanda di Lasso, Hreiðar Inga Þorsteinsson, Atla Heimi Sveinsson, Kodaly. Þá eru hafnar upptökur á geisladiski með trúarlegri tónlist sem kemur væntanlega út þessu ári.
| Hafnarborg
Menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar Strandgata 34 220 Hafnarfjörður Ísland |
Opið alla daga kl. 12–17 og fimmtudaga til kl. 21. Lokað á þriðjudögum. www.hafnarborg.is hafnarborg@hafnarfjordur.is 585 5790 |