mynd tengd atburði: Útgáfutónleikar - ''Enn er oft í koti kátt!'' lögin hans Friðriks
02. júní - 02. júní 2009  kl. 20

Útgáfutónleikar - ''Enn er oft í koti kátt!'' lögin hans Friðriks

Fjórir kórar munu þenja raddir sínar þetta kvöld á Björtum Dögum í Hafnarborg. Tilefnið er útgáfa þeirra á nýjum geisladiski með lögum eftir Friðrik Bjarnason. Flytjendur Kór Öldutúnsskóla, Kvennakór Öldutúns, Karlakórinn Þrestir og Kammerkór Hafnarfjarðar.

Geisladiskurinn verður á sérstöku tilboðsverði 1.500 kr.

Karlakórinn Þrestir var stofnaður 1912 af Friðriki Bjarnasyni tónskáldi og er elsti samfellt starfandi kór landsins og heldur uppá 95 ára afmæli sitt á þessu ári. Saga Þrasta er samofin sögu Hafnarfjarðar enda notið liðsinnis margra bæjarbúa. Þrestir hafa notið leiðsagnar margra landsþekktra stjórnenda og tónskálda frá upphafi. Síðastur í þeirri röð er Jón Kristinn Cortez sem hefur stjórnað Þröstum síðast liðin 10 ár. Kórinn hefur keppt og haldið tónleika víða um lönd og tekið þátt í uppfærslum á stærri verkum og sungið meðal annars í Carnegie Hall í New York. Auk þess hefur kórinn ferðast víða um Ísland,  staðið fyrir Landsmóti íslenskra karlakóra og Norðurlandamóti karlakóra.

Kammerkór Hafnarfjarðar Kórinn var stofnaður í byrjun ársins 1997 af stjórnanda hans, Helga Bragasyni og fagnar því 10 ára afmæli um þessar mundir.
Í nóvember 1999 gaf kórinn út geisladiskinn Gaudete! og hlaut hann frábæra dóma.
Kórinn hefur ávallt leitast við að hafa efnisskrá sína sem fjölbreyttasta og hefur flutt veraldlega og kirkjulega kórtónlist allt frá miðöldum fram til nútímans auk annarrar tónlistar, til dæmis djass og þjóðlagatónlistar. Þar má nefna Sacred Concerts eftir Duke Ellington, Krýningarmessu Mozarts, Missa Solemnis eftir Mozart og margt fleira.  Að öllu jöfnu er Kammerkórinn með þrenna tónleika á ári, sífellt með nýrri efnisskrá.
Kammerkórinn hefur af og til lagt land undir fót og meðal annars haldið tónleika í Kaupmannahöfn.

Kór Öldutúnsskóla var stofnaður árið 1965.  Stjórnandi hans frá upphafi til haustsins 2005 er Egill Friðleifsson en þá tók Brynhildur Auðbjargardóttir við eldri kórnum.  Egill stjórnar áfram yngri kór skólans.  Kórinn hefur undur stjórn Egils ferðast víða um heim og tekið þátt í kóramótum og kórakeppnum og hefur getið sér gott orð fyrir góðan söng.  Egill er frumkvöðull í barnakórastarfi á Íslandi.  Síðasta ferð kórsins var í maí 2007.  Þá hélt kórinn til Óslóar þar sem hann hélt tónleika ásamt vinarkór sínum: Barnakór Bölerskóla.  Þetta var fyrsta utanlandsferð kórsins undir stjórn Brynhildar.

Kvennakór Öldutúns var stofnaður haustið 2005.  Kjarni hans samanstóð af konum sem höfðu sungið í Kór Öldutúnsskóla, sem börn.  Kórinn hefur síðan bætt við sig konum úr ýmsum áttum því hann er opin öllum konum burt séð frá því hvort þær hafi sungið í Kór Öldutúnsskóla eða ekki.  Stjórnandi kórsin er Brynhildur Auðbjargardóttir. 


Heim

Heim
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is