Elín Ósk Óskarsdóttir sópransöngkona ætlar að flytja aríur, söngleikjatónlist og dægurlög undir flutningi Jónasar Þóris píanóleikara. Á tónleikunum verður á líflegan hátt fjallað um mismunandi stíla tónlistarinnar. Aðgangur kr. 2.000 kr.
Elín Ósk Óskarsdóttir er fædd og uppalin í Rangárvallarsýslu og hóf tónlistarnám sitt við Tónlistarskóla Rangæinga. Þá hélt hún til náms við Söngskólann í Reykjavík og lauk þaðan einsöngvaraprófi. Aðalkennari hennar var Þuríður Pálsdóttir söngkona. Elín Ósk stundaði framhaldsnám á Ítalíu og Englandi hjá Pier Miranda Ferraro og Ms. Gita Denise Vibyral. Eftir tveggja ára nám á Ítalíu var Elín Ósk kölluð heim til Íslands til að syngja titilhlutverkið í óperunni Tosca í uppfærslu Þjóðleikhússins og var það jafnframt hennar fyrsta óperuhlutverk á sviði en hún söng það sama hlutverk aftur á fjölum Íslensku Óperunnar starfsárið 2005-2006
Elín Ósk hefur sungið fjölda mörg óperuhlutverk innanlands sem erlendis og fengið fjölda viðurkennina og tilnefningar fyrir list sína en fyrir hlutverk Lady Macbeth í uppfærslu Íslensku Óperunnar á óperunni Macbeth eftir Verdi árið 2003 var hún tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna sem besti flytjandi ársins í flokki sígildrar tónlistar og fékk frábært lof gagnrínanda fyrir túlkun sína á því sama hlutverki í virtasta óperublaði Evrópu” Opera Now “Áður hefur Elín verið tilnefnd til tónlistarverðalauna en það var árið 1995 fyrir hlutverk Leonoru Á Valdi Örlaganna eftir Verdi.
Árið 2003 hlaut Elín viðurkenningu Sverrisdags í Hafnarborg fyrir framlag til menningar og lista í Hafnarfirði og árið 2006 var hún útnefnd sem Bæjarlistamaður Hafnarfjarðar.
Elín Ósk hefur tekist á við ýmis önnur verkefni en óperur, bæði hér á landi og erlendis s.s.óratoriur og messur sungið inn á hljómplötur og hljómdiska og sungið fjölda einsöngstónleika.
Elín Ósk fagnaði 20 ára söngafmæli sínu á sl.ári með ýmsum söngtónleikum og hljóðritun á ítölskum aríum með Sinfóníuhljómsveit Íslands undir stjórn Kurt Kopecky og kom sá hljómdiskur út í nóvember 2006.
Elín Ósk hefur starfað sem kórstjóri í mörg ár en árið 2000 stofnaði hún Óperukór Hafnarfjarðar og hefur hún stjórnað kórnum á fjölmörgum tónleikum bæði innanland sem erlendis við góðan orðstír.
Jónas Þórir hefur lengi verið einn snjallasti píanó- og hljómborðsleikari landsins. Hann er fæddur í Reykjavík 28. mars 1956, sonur hjónanna Jónasar Þóris Dagbjartssonar fiðluleikara og Ingridar Kristjánsdóttur píanókennara.
Jónas Þórir nam ungur fiðluleik hjá Birni Ólafssyni konsertmeistara en sneri sér síðan alfarið að píanóinu og orgelinu. Jónas Þórir lauk tónmenntakennarprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík og kantorsprófi og einleikaraprófi frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar. Hann varð organisti ungur í Óháða söfnuðinum og hefur síðan unnið við kirkjutónlistina samhliða því að spila undir hjá söngvurum og skemmtikröftum. Jónas Þórir er frá haustinu 1999 organisti Lágafellssóknar í Mosfellsbæ. Eftir hann liggja margar tónsmíðar og útsetningar bæði á léttum nótum og klassískum. Jónas Þórir hefur spilað inn á ca. 300 skemmtiþætti í sjónvarpi , unnið og útsett fyrir Þjóðleikhúsið og spilað inn á meira en 45 geisladiska.
Gestir Þjórsárvers geta verið þess fullvissir að hér er á ferðinni stórkostleg þrenning, jafnt á tónlistarsviði sem í skemmtun
| Hafnarborg
Menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar Strandgata 34 220 Hafnarfjörður Ísland |
Opið alla daga kl. 12–17 og fimmtudaga til kl. 21. Lokað á þriðjudögum. www.hafnarborg.is hafnarborg@hafnarfjordur.is 585 5790 |