mynd tengd atburði: Tríó Reykjavík - Klassík við kertaljós
30. nóvember - 30. nóvember 2008  Klassík við kertaljós

Tríó Reykjavík - Klassík við kertaljós

Píanóleikarinn Philip Jenkins verður sérstakur gestur Tríós Reykjavíkur í Hafnarborg, sunnudaginn 30.nóvember kl. 20.00. Tónleikarnir eru liður í tónleikaröð tríósins í samstarfi við Hafnarborg, menningar og listamiðstöð Hafnarfjarðar og bera yfirskriftina: Klassík við kertaljós.

Klassík við kertaljós er orðinn árviss viðburður í tónleikaröð tríósins þar sem sérstök stemmning skapast við hlustun fagurrar tónlistar við kertaljós í svartasta skammdeginu. Efniskráin miðast við að veita birtu og yl inn í vitund áheyrenda. Á efniskránni núna verður sónata í a-moll fyrir fiðlu og píanó eftir Schumann, dúett fyrir fiðlu og selló eftir Haydn og píanótríó í B-dúr eftir Schubert, sem jafnframt er eitt vinsælasta kammerverk allra tíma.

Philip Jenkins er meðal fremstu píanóleikara Bretlands. Farsælt samstarf hans við íslenska tónlistarmenn spannar yfir þrjá áratugi. Aðrir flytjendur á tónleikunum verða Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari og Sigurgeir Agnarsson sellóleikari.
Áskriftarkort gilda, en einnig verða seldir stakir miðar við innganginn.
Nánari upplýsingar og miðasala eru í Hafnarborg í síma 5855790.

 


Heim

Heim
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is