Sopranos skipa sópransöngkonurnar Hörn Hrafnsdóttir, Margrét Grétarsdóttir og Svana Berglind Karlsdóttir. Þær eiga það sameiginlegt að syngja allar með Óperukór Hafnarfjarðar og hafa allar notið leiðsagnar óperusöngkonunnar Elínar Óskar Óskarsdóttur. Píanóleikari þeirra er Antonía Hevesi.
Miðaverð er 1.500 kr.
Svana Berglind Karlsdóttir
Þrátt fyrir að þær eigi ýmislegt sameiginlegt eru þær samt ólíkar að skapi og gerð og hefur það komið sér vel, því mikið jafnvægi ríkir í samstarfinu. Þær eru einnig ólíkar raddtýpur því Hörn er mezzósópran ( skipulögð þokkadís), Margrét lýrískur sópran (flögrandi fiðrildi), Svana Berglind dramatískur sópran (jarðbundin blómarós) og er jafnvægið ekki verra á raddsviðinu því að samhljómurinn er undurfagur.
Margrét Grétarsdóttir
Sopranos héldu sína fyrstu tónleika í Seltjarnarneskirkju þann 17. september 2004 og fengu þær til liðs við sig tenórinn Gissur Pál Gissurarson. Tónleikarnir heppnuðust virkilega vel, fyrir nánast fullu húsi.
Síðan þá hafa þær stöllur haldið tónleika bæði á höfuðborgar- svæðinu sem og úti á landi. Oftar en ekki hafa þær fengið til liðs við sig gestasöngvara. Þeirra á meðal eru þeir Gissur Páll Gissurarson tenór, Ari Jóhann Sigurðsson tenór og Hrólfur Sæmundsson baritón.
Hörn Hrafnsdóttir
Tónleikaformið hjá Sopranos felur í sér blöndu af einsöngsaríum og tríósyrpum sem yfirleitt saman standa af þekktum dægurperlum úr heimi óperunnar og söngleikjum. Megnið af efninu sem þær nota útsetja þær sjálfar og skeyta svo saman í syrpur.
Auk tónleikahalds hafa þær stöllur komið víða fram í brúðkaupum, árshátíðum og við ýmis önnur tilefni.
| Hafnarborg
Menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar Strandgata 34 220 Hafnarfjörður Ísland |
Opið alla daga kl. 12–17 og fimmtudaga til kl. 21. Lokað á þriðjudögum. www.hafnarborg.is hafnarborg@hafnarfjordur.is 585 5790 |