04. desember - 04. desember 2008 kl. 12-12.30
Hádegistónleikar-Jólastundin okkar
Nú eru komið að tíundu tónleikum ársins í hádegistónleikaröð Hafnarborgar. Elín Ósk Óskarsdóttir sópransöngkona mun syngja klassísk og skemmtileg jólalög og Antonia Hevesi spilar á píanó.
Elín Ósk hóf tónlistarnám sitt við Tónlistarskóla Rangæinga og hélt síðan til náms við Söngskólann í Reykjavík og lauk þaðan einsöngvaraprófi 1984. Aðalkennari hennar var Þuríður Pálsdóttir. Hún stundaði framhaldsnám á Ítalíu og Englandi hjá Pier Miranda Ferraro og Gita Denise Vibyral. Eftir tveggja ára nám á Ítalíu var Elín Ósk kölluð heim til Íslands til að syngja titilhlutverkið í óperunni Tosca í uppfærslu Þjóðleik-hússins og var það jafnframt hennar fyrsta óperuhlutverk á sviði.
Elín Ósk hefur tekist á við ýmis önnur verkefni en óperur, bæði hér á landi og erlendis, svo sem óratóríur og messur. Hún hefur komið fram á fjölmörgum tónleikum, sem einsöngvari og með öðrum söngvurum og kórum. Elín Ósk hefur sungið inn á nokkra hljómdiska, en árið 1987 kom út fyrsta einsöngs-hljómplata hennar við undirleik Ólafs Vignis Albertssonar og 1998 kom út hljómdiskur Elínar Óskar, Söngperlur, við undirleik Hólmfríðar Sigurðardóttur píanóleikara. Hún hefur unnið sem kórstjóri í fjölmörg ár þ.á.m. hjá Kór Rangæinga-félagsins í Reykjavík 1990-2000.
Elín Ósk stofnaði Söngsveit Hafnarfjarðar haustið 2000 og er aðalstjórnandi hennar.