mynd tengd atburði: Nýárstónleikar Tríós Reykjavíkur
24. janúar - 24. janúar 2010  kl. 20

Nýárstónleikar Tríós Reykjavíkur

Hinir árlegu Nýárstónleikar Tríós Reykjavíkur í Hafnarborg verða með skemmtilegu ívafi en á dagskrá eru íslensk sönglög og vínartónlist. Sérstakur gestur verður Eyjólfur Eyjólfsson en hann lauk burtfararprófi í flautuleik og söng frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar vorið 2002. Árið 2005 lauk hann meistaragráðu (MMus) og Postgraduate Diploma frá Guilhdall School of Music and Drama í London sumarið 2005.

Eyjólfur hefur sungið með nafntoguðum hljómsveitum og píanóleikurum hér heima og erlendis, t.d. Sinfóníuhljómsveit Íslands og Konunglegu sinfóníuhljómsveitinni í Sevilla þar sem hann söng tenórhlutverkið í óratoríunni Messías eftir Händel í Maestranza óperuhúsinu. Þá flutti hann ljóðaflokkinn Malarastúlkuna fögru eftir Schubert á tónlistarhátínni Islande-Provence í Esparron de Verdon ásamt píanóleikaranum Dalton Baldwin og ljóðatónleika í Tónleikasal Gnessin Tónlistarakademíunnar í Moskvu þar sem Eugene Asti var meðleikari hans.

Eyjólfur hefur tekið virkan þátt í flutningi kirkjutónlistar bæði sem kór- og einsöngvari. Hann hefur komið fram á Sumartónleikum í Skálholti og Kirkjulistahátíð í Hallgrímskirkju þar sem hann hefur meðal annarra hlutverka sungið Guðspjallamanninn í Jólaóratoríu J.S. Bachs undir stjórn Harðar Áskelssonar.

Meðal þeirra hljómdiska sem Eyjólfur hefur sungið inn á má nefna Íslands minni sem hefur að geyma lög Atla Heimis Sveinssonar við ljóð Jónasar Hallgrímssonar í flutningi Fífilbrekkuhópsins sem gefinn var út í tilefni 200 ára afmælis þjóðskáldsins. Á síðasta ári kom út hljómdiskurinn Aldarblik í tilefni aldarafmælis Hafnarfjarðarkaupstaðar þar sem Eyjólfur flytur ásamt öðru hafnfirsku tónlistarfólki íslenskar einsöngsperlur em hann er einmitt til sölu í Hafnarborg. Hægt er að panta miða á tónleikana á opnunartíma Hafnarborgar í síma 585 5790


Heim

Heim
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is