01. október - 01. október 2009 kl. 12-12.30
Hádegistónleikar - Sópran í síðbuxum
Fyrstu hádegistónleikar vetrarins hefjast með sópransöngkonunni Hönnu Dóru Sturludóttur og Antoniu Hevesi á píanó. Þær ætla að flytja aríur. Ókeypis meðan húsrúm leyfir.
Hanna Dóra Sturludóttir stundaði söngnám hjá Kristni Sigmundssyni og Snæbjörgu Snæbjarnar
við Söngskólann í Reykjavík áður en hún hélt til framhaldsnáms við Listaháskólann í Berlín,
þar sem hún útskrifaðist með láði vorið 1998. Árið 1995 vann hún ljóðasöngkeppni „Paula Lindberg-Salomon“ í Berlín og hljóðritaði í framhaldi af því tvo geisladiska með ljóðasöngvum frá 20.öld. Hanna Dóra hefur komið fram sem gestasöngvari víðsvegar í Þýskalandi, meðal annars í Komische Oper í Berlín og undanfarin tvö ár einnig í Ríkisóperunni í Hamborg og Berlín. Á árunum 1998-2001 var hún fastráðin við óperuhúsið í Neustrelitz þar sem hún söng mörg helstu sópranhlutverk óperubókmenntana. Samhliða óperusöngnum hefur Hanna Dóra komið fram á tónleikum um allt Þýskaland og víða í Evrópu og tónleikahald hefur meðal annars borið hana til Qatar og Egyptalands. Á Íslandi hefur hún sungið með Sinfóníuhljómsveit Íslands við mörg tækifæri, haldið fjölda ljóðatónleika, sungið í uppsetningum Íslensku Óperunnar („Töfraflautan“ 2001 og „Tökin hert“ 2005 og titilhlutverk „Ariadne auf Naxos“ 2007) og sungið Vínartónleika með Salónhljómsveit Sigurðar Ingva Snorrasonar.
Árið 2006 kom Hanna Dóra fram sem sérstakur gestur á Artarena tónleikahátíðinni í Sviss, þar
sem hún ásamt Steinunni Birnu Ragnarsdóttur, flutti eingöngu íslensk lög, og fengu tónleikarnir
afar jákvæða umfjöllun. Haustið 2008 söng Hanna Dóra aðalhlutverkið í nýrri óperu úr óperusmiðju Novoflot, sem sýnd var í Berlin og veturinn 2009 mun hún m.a. syngja í sviðsuppfærslu á Jólaóratoríunni í Berlin.