mynd tengd atburði: Hádegistónleikar - Dísella
03. desember - 03. desember 2009  kl. 12-12.30

Hádegistónleikar - Dísella

Á jólahádegistónleikum vetrarins mun Dísella Lárusdóttir syngja en hún syngur um þessar mundir hlutverk Adinu í Ástardrykknum eftir Donizetti í Íslensku óperunni. Hún mun flytja okkur nokkrar aríur úr þeirri óperu, Prendi úr Ástardrykknum og Eccomi in lieta vesta eftir Bellini auk sykursætra bandarískra jólalaga.  Ókeypis meðan húsrúm leyfir.


Dísella útskrifaðist úr Söngskólanum í Reykjavík árið 2002 og fór þaðan í meistaranám við Westminster Choir College, Rider University í Princeton í Bandaríkjunum. Þaðan útskrifaðist hún í maí 2005. Stuttu síðar bar hún sigur úr býtum í Astral Artistic Services 2006 National Auditions, komst í undanúrslit í Lauren S. Zachary National Vocal Competition, og í undanúrslit í söngkeppni Plácido Domingo, Operalia 2006. Árið 2007 sigraði hún svo í Greenfield-keppni Fíladelfíu-hljómsveitarinnar og í kjölfarið bauðst henni að koma fram með hljómsveitinni á árlegum gala-tónleikum sem nefnast Academy Concert & Ball ásamt píanistanum unga, Conrad Tao, Blue Man Group og Billy Joel undir stjórn Christoph Eschenbach. Stuttu eftir sigurinn í Greenfield-keppninni komst Dísella í undanúrslit í Metropolitan Opera National Council Auditions og í framhaldi af því fékk hún starfssamning hjá Metropolitan-óperunni í hlutverki Miss Schlesen í óperu Philips Glass, Satyagraha. Í apríl 2008 hélt hún debut-tónleika sína í New York í Merkin Hall og fékk einróma góða dóma fyrir. Disella söng með Sinfóníuhljómsveit Íslands á árlegum Vínartónleikum hljómsveitarinnar í janúar 2009 og hlaut einróma lof fyrir

Heim

Heim
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is