27. nóvember - 27. nóvember 2008 kl.20
Aldarblik - útgáfutónleikar
Geisladiskurinn Aldarblik var gefinn út í tilefni af 100 ára afmæli Hafnarfjarðar, en hátíðarhöldin stóðu sem hæst í maí sl. Það eru ungir hafnfirðingar sem flytja þar ástsæla íslenska söngva í nýjum útsetningum Jóns Guðmundssonar og Sigurðs Rúnars Jónssonar. Það eru þau Eyjólfur Eyjólfsson tenór, Ágúst Ólafsson barítón og Ástríður Alda Sigurðardóttir píanóleikari sem eru þar í aðalhlutverkum. Aðrir flytjendur eru Birgir Bragason á kontrabassa, Helga Björg Arnardóttir á klarinettu og Hjörleifur Valsson á fiðlu. Svo syngur kór Flensborgarskóla í nokkrum laganna undir stjórn Hrafnhildar Blomsterberg. Diskurinn er dásemd á að hlusta og hefur verið á “fóninum” alla helgina. Hann er til sölu í Hafnarborg. Engin aðgangseyrir.