mynd tengd atburði: Sópranós - jólatónleikar
16. desember - 16. desember 2009  kl. 20

Sópranós - jólatónleikar

SOPRANOS tríóið er Hafnfirðingum að góðu kunnugt en það skipa söngkonurnar Hörn Hrafnsdóttir, Margrét Grétarsdóttir og Svana Berglind Karlsdóttir. Loksins er komið að jólatónleikum hjá tríóinu en 4 ár eru síðan þær héldu síðast jólatónleika í Seltjarnarneskirkju þar sem færri komust að en vildu.
Tónleikarnir verða bland af hátíðlegum gullmolum auk léttra og skemmtilegra dægurlaga jólanna í útsetningu SOPRANOS og Egils Gunnarssonar.

Gestasöngvarinn kemur heitur af fjölum íslensku óperunnar og er enginn annar en stórsöngvarinn Bjarni Thor sem hefur glatt landsmenn undanfarið í Ástardrykknum þar sem hann fer með hlutverk farandsölumannsins Dulcamara með sinni mögnuðu bassarödd og frábærum leiktilþrifum.
Bjarni Thor mun að sjálfsögðu slá á létta strengi með stelpunum.

Hólmfríður Sigurðardóttir mun fara fimum fingrum um flygilinn þetta kvöld og Örnólfur Kristjánsson strýkur sellóið af sinni alkunnu snilld.

Aðgangseyrir er 2000 kr og forsala aðgöngumiða er á www.midi.is annars við innganginn. Þeir sem mæta með jólasveinahúfur fá glaðning. Sjá nánar á heimasíðu Sopranos, www.sopranos.is<http://www.sopranos.is> þegar nær dregur.


Heim

Heim
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is