mynd tengd atburði: Tríó Reykjavíkur - frumflutningur verks eftir Gunnar Karel Másson
07. mars - 07. mars 2010  kl. 20

Tríó Reykjavíkur - frumflutningur verks eftir Gunnar Karel Másson

Þetta eru fjórðu og síðustu tónleikar Tríós Reykjavíkur í tuttugstu tónleikaröð þeirra í Hafnarborg. Á efniskrá verða verk eftir Kodaly og Schumann auk frumflutnings á nýju verki eftir ungan og efnilegan tónlistarmann Gunnar Karel Másson. Hægt er að kaupa miða í Hafnarborg en miðaverð er 2.400 kr. Gestaleikari er Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari.

Trió Reykjavíkur kemur nú fram 20. árið i röð i samvinnu við Hafnarborg, menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar. Á þessum tíma hefur tríóið haldið marga tugi tónleika í Hafnarborg, frumflutt fjölda nýrra verka auk þess að gefa áheyrendum sínum ávallt kost á að heyra hin hefðbundnu verk gömlu meistaranna. Fjöldi listamanna í hæsta gæðaflokki, bæði erlendir og íslenskir, hafa komið fram á tónleikaröðinni.


GUNNAR KAREL MÁSSON:
Gunnar Karel Másson fæddist í Reykjavík 17. Maí 1984. Tónlistarnám hóf hann ungur að árum í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar. Hann hefur stundað nám á nokkur hljóðfæri má m.a. nefna túbunám við undirbúningsdeild fyrir tónlistarháskóla í Danmörku. Árið hóf Gunnar Karel nám 2007 við Listaháskóla Íslands og lýkur þaðan B.A. gráðu í tónsmíðum vorið 2010.
Flutt hafa verið verk eftir Gunnar Karel á tónlistarhátíðum bæði hér heima og erlendis, Myrkir Músíkdagar 2010, Hitzacker Musiktage 2009, Við Djúpið 2009 og UNM 2009.
Einnig hefur Gunnar Karel samið tónlist fyrir leikhús má þar á meðal nefna; Þrettándakvöld í uppsetningu Þjóðleikhússins og Nemendaleikhússins og Munaðarlaus sem var sjálfstæð uppfærsla sett á svið í Norræna Húsinu fyrr á þessu ári.


BRYNDÍS HALLA GYLFADÓTTIR:
Bryndis Halla Gylfadóttir hóf sellónám sex ára gömul. Eftir nám í  hinum ýmsu tónlistarskólum hérlendis og í Kanada tók við nám í Tónlistarskólanum í Reykjavík þar sem kennari hennar var Gunnar Kvaran.  Útskrifaðist Bryndís Halla þaðan árið 1984 með einleikarapróf .Sama ár hóf Bryndís nám við New England Conservatory of Music í Boston.Voru kennarar hennar þar  Colin Carr og Laurence Lesser. Bryndís hlaut Bachelors gráðu frá þeim skóla árið 1987 og 
Mastersgráðu árið 1989. Árið 1990 tók Bryndís við stöðu leiðandi sellóleikar í Sinfóníuhljómsveit Íslands, staða sem hún gegnir enn. Auk þess að leika með hljómsveitinni hefur Bryndís verið virk sem einleikari og kammermúsíkant bæði hérlendis og erlendis.  Hún er 
meðlimur í Tríó Nordica, Caput og Tangósveit Oliviers Manoury. Bryndís hefur leikið inn á fjölda geisladiska, og spilað á hinum ýmsu tónlistarhátíðum á Íslandi jafnt sem víðar í Evrópu, í Asíu og vestan hafs. Hún hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir leik sinn,  meðal annars  Tónvakaverðlaun ríkisútvarpsins og Íslensku tónlistarverðlaunin í þrígang.

 


Heim

Heim
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is