25. janúar - 25. janúar 2010 kl. 20
Myrkir músíkdagar - Sunna og Andrés
Tónlistarhátíðin Myrkir Músíkdagar var fyrst haldin árið 1980 og frá upphafi hefur íslensk tónlist verið í forgrunni á dagskrá hátíðarinnar ásamt nýlegum verkum erlendis frá. Hátíðin, sem ávallt er haldin í svartasta skammdeginu og hlýtur af því nafn sitt, stendur yfir í eina viku og er haldin í annað sinn í Hafnarborg. Þrír viðburðir verða í Hafnarborg 25. - 27. janúar.
Í kvöld verða djasstónleikar með Sunnu Gunnlaugsdóttur á píanó og Andrési Gunnlaugssyni á gítar. Þau ætla að leika frumsamið efni og útsetningar á ísl. þjóðlögum.
Nánari upplýsingar um dagskrána i heild á
www.listir.is/myrkir