mynd tengd atburði: Hádegistónleikar - Óp hópurinn
04. febrúar - 04. febrúar 2010  kl. 12

Hádegistónleikar - Óp hópurinn

Óp hópurinn ætlar að flytja lög eftir Lehár og Strauss. Óp hópurinn er heiti nýstofnaðs félagsskapar ungra óperusöngvara. Í hópnum eru sjö söngvarar úr öllum röddum, sem eiga það sameiginlegt að vera komnir á þann stað á söngferli sínum að miklu skiptir að kynna sig og fá æfingu og tækifæri til að koma fram opinberlega.
 
Tilgangurinn með starfsemi Óp-hópsins er m.a. að auka samvinnu söngvaranna, gera þeim kleift að flytja samsöngsatriði úr óperum, koma reglulega fram á tónleikum, auðvelda þeim íslensku aðilum sem kaupa þjónustu söngvara að kynnast þeim betur undir eðlilegum aðstæðum - þ.e. heyra í þeim á tónleikum, þjálfa söngvarana fyrir keppni erlendis og reyna að fá umboðsaðila og útsendara erlendra óperuhúsa til að koma til Íslands og kynnast því sem íslenskir söngvarar hafa uppá að bjóða.
Óp hópinn skipa Antonia Hevesi, Bylgja Dís Gunnarsdóttir, Jón Svavar Jósefsson, Rúnar Guðmundsson, Erla Björg Káradóttir, Rósalind Gísladóttir, Hörn Hrafnsdóttir og Jóhanna Héðinsdóttir.
sjá meiri upplýsingar um hópinn á vefsíðu þeirra www.op-hopurinn.is

Heim

Heim
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is