Helstu hlutverk eru Don Giovanni, Posa í Don Carlo og Le Disqorde í Les arts florissants í óperuuppfærslum Síbelíusar-akademíunnar og með Óperustúdíói Austurlands hlutverk greifans í Brúðkaupi Fígarós og Don Giovanni. Ágúst hefur sungið á ljóðasöngstónleikum víða í Finnlandi og í Þýskalandi, m.a. í Berlín á 100 ára ártíð Hugo Wolfs, sem Dietrich Fischer-Dieskau skipulagði og tók sjálfur þátt í. Hlutverk Ágústs hjá Íslensku óperunni til þessa eru titilhlutverkið í óperutryllinum Sweeney Todd hlutverk Skuggans í Rake´s Progress , Harlekin í Ariadne á Naxos og Douphol barón í La traviata, og auk þess að vera einn af söngvurunum í Óperuperlum. Ágúst er tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna sem verða veitt 13.mars í flokkinum Rödd ársins. Ágúst var áður tilnefndur árið 2008 sem Flytjandi ársins innan klassíska tónlistargeirans.
| Hafnarborg
Menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar Strandgata 34 220 Hafnarfjörður Ísland |
Opið alla daga kl. 12–17 og fimmtudaga til kl. 21. Lokað á þriðjudögum. www.hafnarborg.is hafnarborg@hafnarfjordur.is 585 5790 |