06. maí - 06. maí 2010 kl. 12
Hádegistónleikar - Ástin og aldurinn
Hádegistónleikar með Jóhanni Smára Sævarssyni bassa og Antoniu Hevesi píanóleikara en þau ætla að flytja aríur eftir Mozart, Tsaikovsky og Verdi. Ókeypis aðgangur meðan húsrúm leyfir.
Jóhann Smári Sævarsson hóf söngnám við Tónlistarskólann í Keflavík hjá Àrna Sighvatssyni og við Nýja tónlistarskólann hjá Sigurði Demetz. Hann stundaði framhaldsnám við sameiginlega óperudeild Royal College of Music og Royal Academy of Music í London. Að námi loknu réði Jóhann Smári sig við Kölnaróperuna og var þar í þrjú ár. Jóhann var einnig fjögur ár á föstum samningi við óperuna í Regensburg.
Jóhann hefur sungið sem gestasöngvari við fjölda óperuhúsa í Evrópu. Hann hefur starfað með ýmsum frægum hljómsveitastjórum, meðal annarra Bernard Haitink, Kent Nagano, James Conlon og Gennadi Rozhdestvensky, og þekktum hljómsveitum á borð við London Philharmonic, BBC Concert Orchestra, Gurzenich Orchester og WDR útvarpshljómsveitina í Köln. Jóhann hefur sungið yfir 50 hlutverk á ferlinum, þar á meðal Baron Ochs, Filippo II, Don Manifico, Sarastro, Leporello, titilhlutverkid í Mefistofele, Rocco, Daland, Figaro, titilhlutverkið í Gianni Schicci og Tevje í Fiðlaranum á þakinu. Meðal verka á tónleikum eru Requiem Verdis, Requiem Mozarts, 9. sinfónía Beethovens, 8. sinfónía Mahlers, Sköpunin eftir Haydn og Hallgrímspassía eftir Sigurð Sævarsson. Jóhann hefur haldið ljóðatónleika hérlendis og erlendis þar á meðal Vetrarferðina eftir Schubert. Þá hefur Jóhann komið fram í sjónvarpi og útvarpi bæði hér heima og erlendis. Söng Jóhanns má heyra á geisladiskum m.a. í Helgarkviðu hundingsbana eftir Jón Leifs með Kamersveit Reykjavíkur, Vetrarferðinni eftir Schubert við undirleik Kurt Kopecky og Hallgrímspassíu Sigurðar Sævarssonar með Schola Cantorum og Caput hópnum undir stjórn Harðar Áskelssonar.