Tríó Björns Thoroddsen ásamt Richard Gillis trompetleikara á síðdegisdjassi í Hafnarborg á sjómannasunnudegi.
Hér leika þeir Björn Thoroddsen gitarleikari, Guðmundur Steingrimsson trommuleikari, Jón Rafnsson bassaleikari og Richard Gillis trompetleikari af fingrum fram tónlist úr ýmsum áttum; - ameríska jazz-standarda, tónlist frá Suður Ameríku, íslensk þjóðlög og tangóa. Richard Gillis, trompetleikari, er búsettur í Winnipeg í Kanada og er af íslensku bergi brotinn. Hann er mjög virkur tónlistarmaður, bæði sem einleikari og sem stjórnandi Winnipeg Jazz Orchestra og er auk þess, prófessor við tónlistarháskólann í Manitoba. Hann starfrækir einnig, ásamt Birni Thoroddsen, hljómsveitina Cold Front og lék sem sérstakur gestur með tríóinu Guitar Islancio á diskinum Icelandic Folk.
Guðmund Steingrímsson þarf vart að kynna en hann hefur verið í fremstu röð trommuleikara á Íslandi í yfir 60 ár, - varð landsþekktur sem einn af meðlimum hins ódauðlega KK sextetts sem starfaði á árunum á milli 1950 og 1960. Björn Thoroddsen, gítarleikari, hefur sl. 25 ár verið einn af atkvæðamestu jazztónlistarmönnum Íslands og Jón Rafnsson hefur einnig, í yfir tvo áratugi, verið mjög virkur í íslensku tónlistarlífi og leikið jöfnum höndum hina ýmsu tónlistarstíla. Þeir Jón og Björn leika einnig saman í tríóinu Guitar Islancio. Aðgangur ókeypis í boði Manns lifandi.
| Hafnarborg
Menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar Strandgata 34 220 Hafnarfjörður Ísland |
Opið alla daga kl. 12–17 og fimmtudaga til kl. 21. Lokað á þriðjudögum. www.hafnarborg.is hafnarborg@hafnarfjordur.is 585 5790 |