mynd tengd atburði: Síðdegisdjass
04. janúar - 04. janúar 2009  kl. 16-17

Síðdegisdjass

Tríó Björns Thoroddsens, sem skipað er þeim Birni á gítar, Guðmundi Steingrímssyni á trommur og Jóni Rafnssyni á kontrabassa, mun spila í Hafnarborg á lokadegi málverkasýninganna Sjórinn og sjávarplássið og Charlottenborgarárin 1961 – 1968, tækifæri – örlög. Tónleikarnir verða í fremri kaffistofu “Maður lifandi” og hefjast kl:. 16:00 og standa yfir fram að lokun sýninganna. Tilefnið er að sögn Guðmundar Steingrímssonar, trommuleikara tríósins, virðingarvottur við listamanninn Svein Björnsson, sem var mikill jassunnandi. Hann málaði gjarnan við jassundirleik og hann veitti Guðmundi tækifæri á sínum tíma ásamt nafna hans Ingólfssyni til að halda sameiginlega afmælistónleika þeirra félaga á síðustu sýningu Sveins á Kjarvalsstöðum árið 1989 fyrir stóran hóp áheyrenda. Þessa vill Guðmundur minnast með þakklæti. Svo er hitt að tríóið vill heiðra Hafnarfjörð á þessum merku tímamótum í sögu bæjarins, þegar 100 ára afmælishátíð hans er að ljúka en þeir Guðmundur og Björn eru báðir barnsfæddir Hafnarfirðingar og Jón kennir við Tónlistarskólann í Hafnarfirði. Hafnfirsk tónlist mun setja nokkurn svip á verkefnaval (lagaval) tríósins.
Tríóið hefur áður spilað fyrir Sveinssafn í vinnustofu Sveins í Krýsuvík. Ókeypis aðgangur.

Heim

Heim
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is