05. febrúar - 05. febrúar 2009 kl.12-12.30
Hádegistónleikar - Dökku hliðar baritónsins
Alex Ashworth baritón söngvari er gestur Antoniu Hevesi píanóleikara í þessari 11. hádegistónleikaröð Hafnarborgar. En Antonia Hevesi hefur frá upphafi skipulagt tónleikana eða frá árinu 2003. Alex er staddur hér á landi vegna hlutverks í Íslensku óperunni.
Alex Ashworth baritón hóf söngferil sinn í kór Tewkesbury Abbey. Þaðan fór hann til St John’s College í Cambridge bæði í kórskóla og bóklegt nám. Þá hlaut hann styrk til náms í Royal Academy of Music og nam þar hjá Mark Wildman og David Lowe. Alex vann til allmargra verðlauna meðan á námi stóð.Alex hefur sungið einsöng í fjölmörgum óratóríum og má þar m.a. nefna Vespers eftir Monteverdi, Ísrael í Egyptalandi eftir Handel með Bach-kórnum í Oxford og áttundu sinfóníu Mahlers. Meðal sviðsverka má nefna titilhlutverkið í Eugene Onegin hjá Skosku óperunni, Frederic í Lakme eftir Delibes með Chelsea-óperuhópnum, aðalhlutverkið í Don Giovanni í uppfærslu London Royal School’s Opera með Sir Colin Davis og Falstaff eftir Verdi fyrst með Royal Academy Opera en nú nýlega í sænska hluta Lapplands, í Globe-leikhúsinu sem eingöngu er byggt úr ís og snjó!Hann hlaut John Scott verðlaunin fyrir unga söngvara eftir verkefnin hjá Skosku óperunni. Árið 2005 kom Alex í fyrsta skipti fram í Glyndebourne óperunni í hlutverki Curio í hinni rómuðu uppfærslu David McVicars á Júlíusi Sesar sem gefin var út á DVD-diski árið 2006. Alex söng Aeneas í Dido og Aeneas með Trevor Pinnock árið 2006 á Halle tónlistarhátíðinni og Don Giovanni í Skosku óperunni. Hann mun á næstunni syngja í óperunni Júlíusi Sesar í Lille Opera, koma fram á tónleikum á tónlistarhátíð sem nefnd er Three Choirs Festival síðar á þessu ári og taka þátt í flutningi á óratóríum víðs vegar um Bretland.