mynd tengd atburði: Hádegistónleikar
02. september - 02. september 2010  kl. 12-12.30

Hádegistónleikar

Fyrstu hádegistónleikar vetrarins hefjast með engum öðrum en Garðari Thór Cortes ásamt Antoniu Hevesi píanóleikara en hún hefur verið listrænn stjórnandi hádegistónleikana frá upphafi frá árinu 2003. Antonia er jafnframt píanóleikari Íslensku óperunnar.

Garðar Thór Cortes hóf söngnám í Söngskólanum í Reykjavík árið 1993 hjá Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur og lauk þaðan prófi fjórum árum síðar. Eftir það stundaði hann nám við Hochschule für Darstellende Kunst und Musik í Vínarborg, sótti einkatíma hjá André Orlowitz í Kaupmannahöfn og stundaði nám við óperudeild Konunglega tónlistarháskólans í Lundúnum. Garðar Thór hefur komið víða fram og haldið einsöngstónleika, sungið í söngleikjum, óratóríum og óperum hér heima, víðsvegar í Evrópu og einnig í Bandaríkjunum.


Meðal hlutverka sem Garðar hefur sungið eru Ferrando í Così fan tutte, Fenton í Falstaff, Alfredo í LaTraviata, Rinuccchio í Gianni Schicchi, ítalskur söngvari í Der Rosenkavalier, Vakula í Cherevichki, Chanfalla í Das Wundertheater, Rodolfo í La Bohème, hertoginn í Rigoletto og Alberto í L‘occasione fa il ladro. Hann söng hlutverk Don Ramiro í Öskubusku hjá Íslensku óperunni árið 2006. Garðar hefur sungið á tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands og með sópransöngkonunni Kiri Te Kanawa. Garðar kom fram á lokatónleikum Proms-tónlistarhátíðarinnar í London haustið 2009 og söng fyrir tugþúsundir. Síðasta hlutverk hans hjá Íslensku óperunni var Nemorino í Ástardrykknum veturönn 2009-2010.

Rio Tinto Alcan er þakkaður stuðningur við Hádegistónleika í Hafnarborg


Heim

Heim
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is