02. desember - 02. desember 2010 kl. 12-12:30
Hádegistónleikar
Snorri hóf söngferil sinn með Pólýfónkórnum, Mótettukór Hallgrímskirkju og Kór Íslensku óperunnar. Hann stundaði nám við Söngskólann í Reykjavík hjá Magnúsi Jónssyni og Dóru Reyndal. Að því loknu hélt hann til Vínarborgar og lauk diplom-prófi frá Konservatorium árið 1992. Aðalkennarar hans þar voru Svanhvít Egilsdóttir og Carol Blencho-Mayo. Þar fór hann m.a. með hlutverk Rodolfos í La Bohème, Lionels í Mörtu og Hans í Seldu brúðinni.
Snorri hefur sungið með Jugendstil Theater, Salzburger Tourne, við óperuhúsið í Lippstadt, Flensburg og víðar. Þá söng hann þrjú sumur í kór Wagnerhátíðarinnar í Bayreuth. Snorri var fastráðinn sem einsöngvari við óperuna í Coburg í Þýskalandi á árunum 1992-1996. Í Íslensku óperunni hefur hann m.a. sungið hlutverk Dr. Blind í Leðurblökunni vorið 1999, Monostatosar í Töfraflautunni haustið 2001. Þá fór hann með hlutverk stýrimannsins í uppfærslu Íslensku óperunnar, Þjóðleikhússins, Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Listahátíðar í Reykjavík á Hollendingnum fljúgandi vorið 2002.
Veturinn 2003 söng hann hlutverk Malcolms í Macbeth og s.l. vetur titilhlutverkið í óperunni Werther og hlutverk Don Basilios og Don Curizos í Brúðkaupi Fígarós og haustið 2004 söng hann hlutverk Tóbíasar Ragg í Sweeney Todd hjá Íslensku óperunni.