11. janúar - 11. janúar 2009 kl.20
Nýárstónleikar Tríós Reykjavíkur
Tríó Reykjavíkur heldur sína árlegu nýárstónleika í Hafnarborg, menningar og listamiðstöð Hafnarfjarðar næstkomandi sunnudag þar verður svo sannarlega slegið á léttari strengi með þeim Sigrúnu Hjálmtýsdóttur og Bergþóri Pálssyni. Fimmmenningarnir munu að venju koma víða við og leiða tónleikagesti inn í hrífandi og fjölbreyttan heim tónlistar.
Flutt verða lög úr söngleikjum eftir George Gershwin, Frank Loesser, Irving Berlin, ragtime tónlist eftir Scott Joplin, Havanaise og Svanurinn eftir C. Saint-Saëns, aríur úr Marziu greifafrú og Sardasfurstynjunni eftir Emmerich Kálmán að ógleymdum Sardas eftir Monti. Einnig verða lög eftir Paganini, Offenbach og Johann Strauss.
Umfram allt eru þetta tónleikar framúrskarandi flytjenda sem koma öllum í létt og gott skap í upphafi nýs árs. Miðasala í Hafnarborg kl.11-17 og í síma 5855790, miðaverð 2500 kr.
Meðlimir Tríós Reykjavíkur eru þau Peter Máté píanóleikari, Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari og Gunnar Kvaran sellóleikari.