mynd tengd atburði: Hádegistónleikar- Fórnarlömb ástarinnar
05. mars - 05. mars 2009  kl.12-12.30

Hádegistónleikar- Fórnarlömb ástarinnar

Sigrún Hjálmtýsdóttir (Diddú) sópransöngkona mun syngja vel valdar áríur á hádegistónleikunum en það Antonia Hevesi píanóleikari Íslensku óperunnar sem skipuleggur hádegistónleikaröðina og mun hún spila undir á píanó.

Sigrún hún nam söng hér heima og við Guildhall School of Music and Drama í London. Þaðan lauk hún prófum í einsöng og kennslufræðum og fór síðan í framhaldsnám á Ítalíu. Á námsferli sínum vann hún til fjölda viðurkenninga og verðlauna.

Sigrún hefur sungið fjölda hlutverka hjá Íslensku óperunni, í Carmina Burana, Súsönnu í Brúðkaupi Fígarós, Gildu í Rigoletto, Næturdrottninguna og Papagenu í Töfraflautunni, Luciu í Lucia di Lammermoor, Violettu í La traviata, Adinu í Ástardrykknum og Rósalindu í Leðurblökunni. Hún söng í Niflungahringnum og Olympiu í Ævintýrum Hoffmanns, sem voru samstarfsverkefni Óperunnar og Þjóðleikhússins. Árið 1992 söng hún Gildu í Rigoletto við óperuna í Gautaborg. Sigrún hefur leikið og sungið í sjónvarpsleikritum, s.s. Brekkukotsannál og Silfurtunglinu og kvikmyndunum Karlakórnum Heklu og Bíódögum. Hún hefur sungið inn á fjölda hljómdiska og margoft komið fram sem einsöngvari með Sinfóníuhljómsveit Íslands og sungið með kórum bæði kirkjuleg og veraldleg verk. Sigrúnu hefur verið boðið til tónleikahalds víðsvegar um Evrópu, í Japan og í Bandaríkjunum. Henni var veitt Hin íslenska fálkaorða árið 1995.

Heim

Heim
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is