mynd tengd atburði: Hádegistónleikar
06. desember - 06. desember 2011  kl. 12

Hádegistónleikar

Á síðustu hádegistónleikum Hafnarborgar 2011 mun gestur okkar verða Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir messósópran. Hádegistónleikar hafa verið fastur liður í starfi Hafnarborgar frá árinu 2003 en margir af fremstu söngvurum þjóðarinnar hafa komið fram á þeim. Þeim hefur verið mjög vel tekið og komast oft færri að en vilja. Tónleikarnir standa yfir í um hálfa klukkustund og eru öllum opnir á meðan húsrúm leyfir. Tónleikar hefjast svo á ný á nýju ári 2012 í febrúar.

 


Heim

Heim
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is