mynd tengd atburði: Hádegistónleikar - Mozart og ástin
02. apríl - 02. apríl 2009  kl.12-12.30

Hádegistónleikar - Mozart og ástin

Þóra Einarsdóttir sópransöngkona flytur söngdagskrá ásamt Antoniu Hevesi píanóleikara Íslensku óperunnar. Óperuhlutverk Þóru eru fjölmörg og spanna vítt svið. Hún hefur sungið við mörg helstu óperuhús heimsins og er um þessar mundir að syngja í Primadonnunum í Íslensku óperunni.

Antonia Hevesi hefur umsjón með hádegistónleikum í Hafnarborg sem eru fastur liður fyrsta fimmutdag hvers mánaðar yfir vetrartímann.



Þóra Einarsdóttir stundaði söngnám við Söngskólann í Reykjavík hjá Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur og við Guildhall School of Music and Drama hjá Prof. Lauru Sarti. Hún hefur sótt námskeið hjá ýmsum söngvurum og tónlistarmönnum meðal þeirra eru: Thomas Hampson, Elisabeth Söderstöm, Mirella Freni, Emma Kirkby, Sherrill Milnes, Giovanna Cannetti, Katia Riccarelli og hjá píanistunum Graham Johnson, Dalton Baldwin, Geoffrey Parsons, Paul Hamburger og Ian Burnside.
Að námi loknu debúteraði Þóra við Glyndebourne Festival Opera aðeins 23 ára gömul í hlutverkinu „Mirror í „The Second Mrs. Kong eftir Sir Harrison Birtwistle, en frumraun hennar á sviði var í Rigoletto í Íslensku óperunni fimm árum áður. Síðan hefur hún m.a. sungið við Íslensku óperuna, English National Opera, Opera North í Leeds og Musictheater Wales, Tónlistarleikhúsið í Malmö; Svíþjóð, Óperuna í Lausanne; Sviss. Ríkisleikhúsið í Mannheim, Ríksóperurnar í Nürnberg, Darmstadt og Wiesbaden; Þýskalandi og notið tilsagnar góðra leikstjóra, til dæmis Cesare Lievi, John Dew, David Freeman, Tim Supple og Martin Duncan.
Þóra hefur margoft komið fram á tónleikum á Íslandi og víða um Norðurlönd, einnig í Eistlandi, Þýskalandi, Belgíu, Frakklandi, Sviss, Englandi og Bandaríkjunum. Þóra hefur meðal annarra unnið með hljómsveitarstjórunum Pinchas Steinberg, Jonathan Darlington, Marc Piollet, David Atherton, Osmo Vänska Elgar Howarth og Paul Goodwin og komið fram með Orchestre de la Suisse Romande á Galatónleikum fyrir Sameinuðu þjóðirnar í Genf, með Berliner Rundfunk Orchester í Berliner Dom, með Mozart Festival Orchestra í Royal Albert Hall og Royal Festival Hall; London, svo og Sinfóníuhljómsveit Íslands á Íslandi og í Kennedy Centre í Washington og í Weill Recital Hall í Carnegie Hall; New York. Óperuhlutverk Þóru eru orðin á fjórða tug og spanna vítt svið, frá Rameau til Birtwistle, en þó með sérstakri áherslu á Mozart, en hún hefur nú sungið yfir hundrað sinnum í óperum Mozarts. Framundan bíða mörg verkefni meðal annars hlutverk Elmiru í barrok-óperunni Croesus eftir Reinhard Keiser, hlutverk Iliu í Idomeneo eftir Mozart og Woglinde í Götterdämmerung og hefur Þóra þar með sungið í öllum fjórum óperum Niflungahringsins eftir Wagner en hringurinn verður fluttur í heild sinni næsta vor í ríkisóperunni í Wiesbaden. Þóra hefur hlotið ýmsa styrki og viðurkenningar fyrir söng sinn, m.a. var hún fyrsti styrkþegi Minningarsjóðs franska hljómsveitarstjórans Jean-Pierre Jacquillat. Árið 1996 hlaut hún Dannebrog orðuna.



 

 

Heim

Heim
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is