mynd tengd atburði: Tríó Reykjavík - Árstíðirnar og afmælistónskáld ársins
14. september - 14. september 2008  kl. 20

Tríó Reykjavík - Árstíðirnar og afmælistónskáld ársins

Tónleikar Tríós Reykjavíkur í samvinnu við Hafnarborg hefja nú göngu sína 19. starfsárið í röð í kvöld kl. 20. Tveir gestir munu koma fram á tónleikunum þau Steinunn Birna Ragnarsdóttir píanóleikari og Sigurgeir Agnarsson sellóleikari. Þau munu ásamt, Guðnýju Guðmundsdóttur fiðluleikara Tríósins, flytja trio í e-moll eftir Joseph Hayden, trío opus 8 nr. 1 eftir Dmitri Schostakowitsch og Árstíðirnar eftir Astor Piazzolla.  Auk þess munu Guðný og Steinunn Birna flytja nokkrar af perlum þeirra íslensku tónskálda, sem eiga stórafmæli á árinu. Þessi tónskáld eru Atli Heimir Sveinsson, Jón Ásgeirsson, Jórunn Viðar, Páll Pampichler og Þorkell Sigurbjörnsson. Miðasala í Hafnarborg.

Heim

Heim
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is