mynd tengd atburði: Stebbi & Eyfi
06. mars - 06. mars 2009  kl. 20.30

Stebbi & Eyfi

Þeir félagar Stefán Hilmarsson og Eyjólfur Kristjánsson eða Stebbi & Eyfi eins og þeir kalla sig dags daglega munu halda tónleika í Hafnarborg föstudagskvöldið 6. mars n.k.  Rúm 2 ár eru nú síðan þeir héldu tónleika í Hafnarborg síðast fyrir fullu húsi og var gríðarlega góð stemmning í salnum.  Ekki þarf að kynna þá félaga sérstaklega, en þeir eru eins og allir vita tveir af afkastamestu laga og textasmiðum Íslands og hafa sent frá sér ótal lög og texta, bæði saman og í sitthvoru lagi. Þeir hafa flutt lög eins og:  Hjá þér, Nína, Undir þínum áhrifum, Þú fullkomnar mig, Góða ferð, Álfheiður Björk, Ég lifi í draumi, Danska lagið, Í fylgsnum hjartans, Ástarævintýri ( á Vetrarbraut ), Fiðrildi, Dagar, Pínulítið lengur, Og svo er hljótt o.m.fl. Miðaverð á tónleikana er kr. 2.900 og með hverjum miða fylgir geisladiskur þeirra félaga „Nokkrar notalegar ábreiður“, sem kom út í október 2006.


Miðasala og miðapantanir eru í Hafnarborg, sími 585-5790 og í tískuversluninni Respekt á 2. hæð í verslunarmiðstöðinni Firði, Hafnarfirði, sími 533-3931.

 

 


Heim

Heim
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is