mynd tengd atburði: Hádegistónleikar-Tilfinningasúpa
06. nóvember - 06. nóvember 2008  

Hádegistónleikar-Tilfinningasúpa

Edda Austmann lauk BMus. Hon gráðu í Royal Academy of Music í London og MMus.(Opera) gráðu í óperuháskólanum Royal Scottish Academy of Music and Drama í Glasgow. Þar hlaut hún Alþjóðastyrk RSAMD, Thomas Sivewright Catto verðlaunin, Sandy Orr verðlaunin og Jennifer Vyvyan verðlaunin.

Edda reyndi frumraun sína í Zürich óperunni sem Papagena (Töfraflautan) vorið 2006 og var þar einnig staðgengill fyrir hlutverk Despinu (Cosi fan tutte) og Serpettu (La finta giardiniera). Á Bretlandi söng Edda hlutverk Nannettu (Falstaff), Poppeu (Krýning Poppeu), Frasquitu (Carmen) Damon (Acis and Galathea) og Barbarinu (Brúðkaup Fígarós). Á Spáni söng hún hlutverk Elisabettu (Roberto Devereux).

Edda hefur komið fram með Konunglegu Skosku Sínfóníu-hljómsveitinni og með Zürich Kammerhljómsveitinni. Óratoríu verkefni hennar telja Exultate Jubilate, Sálumessu eftir Mozart og Messía eftir Handel. Meðal tónleika-uppfærslna má nefna Bachianas Brasileiras No. 5 eftir Villa-Lobos og L’oca del Cairo eftir Mozart.

Á Íslandi hefur Edda haldið tónleika í Salnum undir nafninu Tónar Evrópu og í Iðnó undir nafninu Amorvísur. Edda vinnur nú að nýjum verkefnum undir handleiðslu Elínar Ósk Óskarsdóttur sópransöngkonu


Nánari upplýsingar veittar í Hafnarborg í síma 585 5790.

 


Heim

Heim
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is