 Tríó Reykjavíkur í Hafnarborg
 Sigurður Ingvi Snorrason
 Jónas Ingimundasson
 Gissur Páll Gissurason
|
Tríó Reykjavíkur
Trió Reykjavíkur kemur nú fram 21. árið i röð i samvinnu við Hafnarborg, menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar. Á þessum tíma hefur tríóið haldið marga tugi tónleika í Hafnarborg, frumflutt fjölda nýrra verka auk þess að gefa áheyrendum sínum ávallt kost á að heyra hin hefðbundnu verk gömlu meistaranna. Fjöldi listamanna í hæsta gæðaflokki, bæði erlendir og íslenskir, hafa komið fram á tónleikaröðinni. Tríóið var stofnað árið 1988 af Halldóri Haraldssyni píanóleikara, Guðnýju Guðmundsdóttur fiðluleikara og Gunnari Kvaran sellóleikara. Árið 1996 tók Peter Maté pianóleikari við af Halldóri.
Á ferli sínum hefur tríóiið komið fram á fjölmörgum tónleikum víða. Hljóðritanir með leik tríósins hafa verið leiknar víða í evrópskum útvarpsstöðvum. Geisladiskur kom út árið 2000. I Í júní 1999 hlaut Tríó Reykjavikur viðurkenningu úr minningarsjóði stofnenda Hafnarborgar, Ingibjargar Sigurjónsdóttur og Sverris Magnússonar, fyrir framlag til lista og menningar í Hafnarfirði. Meðlimir tríósins eru allir kennarar við tónlistardeild Listaháskóla Islands og er tríóið nú staðarkammerhópur skólans. Tríó Reykjavíkur var útnefnt Tónlistarhópur Reykjavíkurborgar fyrir árið 2007 og hlaut þá jafnframt þriggja ára styrk frá borginni til starfsemi sinnar.
Tónleikaröð Tríós Reykjavíkur 2011/12
Sunnudaginn 9. október 2011 kl. 20 Klarinettuveisla Gestur: Sigurður Ingvi Snorrason, klarinettuleikari. Verk eftir Poulenc, Liszt, Milhaud og Bartók
Verkið Andstæður eftir Béla Bartók og klarinettusónatan eftir Francis Poulenc eiga það sameiginlegt að hafa verið pöntuð af klarinettu snillingnum Benny Goodman, sem var amerískur jazz klarinettleikari og hljómsveitastjórnandi. Hann lék með mörgum helstu tónlistarmönnunum heims. Sónatan var frumflutt í Carnegie Hall og það var enginn annar en Leonard Bernstein, sem sat við flygilinn. Létt og leikandi tríó eftir Darius Milhaud mun heyrast á tónleikunum og einnig smáverk eftir Franz Liszt í tilefni tveggja aldar afmælis hans nú í október.
Sunnudaginn 27. nóvember 2011 kl. 20 Klassík við kertaljós Gestur: Jónas Ingimyndarson, píanóleikari
Tvær öndvegis sónötur eftir Schubert og Brahms. Fiðlusónata í A-dúr og Arpeggione sónatan fræga, leikin á selló og píanó. Auk þess verða flutt tríó í C-dúr númer 3. eftir Johannes Brahms. Jónas Ingimundarson, hefur stundum verið nefndur Syngimundarson, mun syngja Shubert á píanóið ásamt meðlimum Tríós Reykjavíkur.
Sunnudaginn 15. janúar 2012 kl. 20 Nýárstónleikar Gestur: Gissur Páll Gissurarson, tenór
Granada, eftir Augustin Laura, No puede ser eftir Pablo Sorozábál, glæsilegar ítalskar aríur, fræg fiðlutónlist eftir Sarasate, Paganini og Kreisler ásamt Vínartónlist, mun verma áheyrendur í ársbyrjun 2012.
Sunnudaginn 11. mars 2012 kl. 20 Evrópskur kúltúr Gestur: Nina Flyer, sellóleikari
Að undangenginni samkeppni meðal tónsmíðanema í tónlistardeild Listaháskóla Íslands, mun Tríó Reykjavíkur frumflytja glænýtt píanótríó. Térkkneska tónskáldið Bohuslav Martin? samdi u.þ.b. 400 tónverk. Ekki heyrast þau oft á Íslandi, en hér gefst tækifæri til að heyra dúó fyrir fiðlu og selló, samið 1927. Tónleikaröðinni mun svo ljúka þetta árið með tríói eftir Beethovens.
Miðaverð á einstaka tónleika kr. 2.400.-
Áskrift kr. 8.000.-
Sala áskriftarkorta er í Hafnarborg. Upplýsingar í síma 585 5790 og um netfang hafnarborg.isNánar um tónleikana og dagskrá Hafnarborgar á heimasíðu safnsins www.hafnarborg.is
|