14. mars - 14. mars 2010 kl. 15
Sýningarstjóraspjall
Tinna Gunnarsdóttir hönnuður og sýningarstjóri sýningarinnar Í barnastærðum annast leiðsögn um sýninguna. Á sýningunni er bæði íslensk og alþjóðleg hönnun en eitt af meginmarkmiðum hennar er að skoða verk íslenskra hönnuða. Mikill hluti þess sem unnið hefur verið hér á landi eru húsgögn og leikföng sem hönnuðir, arkitektar og listamenn hafa unnið fyrir sín eigin börn og fæst hefur komist í almenna framleiðslu. Flestir erlendu hlutirnir eru eftir vel þekkta hönnuðir og hafa ýmist haft áhrif á íslenska hönnun eða sækja í svipaðar hugmyndir og setja þannig íslensku hlutina í alþjóðlegt samhengi.