mynd tengd atburði: Samtal við hönnuð
18. apríl - 18. apríl 2010  kl. 15

Samtal við hönnuð

Gunnar Magnússon er einn af afkastamestu húsgagnahönnuðum landsins og hafa fjölmargir hlutir eftir hann farið í almenna framleiðslu. Hann er því á meðal þeirra manna sem mótað hafa umhverfi okkar á síðustu áratugum. Gunnar á hluti á sýningunni sem hann hannaði fyrir sín eigin börn og aldrei fóru í almenna framleiðslu. En mikill hluti þess sem hannað hefur verið hér á landi fyrir börn eru einmitt húsgögn og leikföng sem hönnuðir, arkitektar og listamenn hafa unnið fyrir sín eigin börn. Gunnar ræðir feril sinn og íslenska húsgagnahönnun á síðustu áratugum við Hörpu Þórsdóttur forstöðumann Hönnunarsafns Íslands.

Heim

Heim
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is