Hafnarborg verður með fjölbreytta dagskrá á Safnanótt í ár. En Safnanótt er haldin í áttunda sinng og er hluti af Vetrarhátíð. Í boði verður fjölbreytt dagskrá fyrir gesti á öllum aldri fram undir miðnætti og allir viðburðirnir eru ókeypis.
Við bendum á að sérstakur safnanæturstrætó gengur á milli safnanna og auðveldar gestum að heimsækja fjölmörg söfn á einu kvöldi.
Ekki gleyma safnanæturleiknum! veglegir vinningar i boði
Dagskrá Hafnarborgar
Kl. 19:00 – 24:00
Risa myndvörpun á útvegg Hafnarborgar
Verkið Curtain Walls eftir Andrew Burgess verður varpað í stórri mynd á útvegg Hafnarborgar. Andrew er kanadískur arkitekt sem undanfarin ár hefur unnið video verk sem hann varpar á heilu byggingarnar. Segja má að hann noti byggingarnar eins og málarastriga um leið og hann dregur fram einkenni hverrar byggingar fyrir sig með ljósi, litum og hreyfingu.
Screening night
Video verk eftir ólíka listamenn verða til sýnis í Apótekinu svokallaða sem er einn af sölum Hafnarborgar. Listamennirnir sem eiga verk á þessum viðburði eru Ásta Ólafsdóttir, Björk Viggósdóttir, Dodda Maggý, Hekla Dögg Jónsdóttir, Lina Bjørn, María Dalberg og Monika Frycová. Þær hafa allar starfað á Íslandi en eiga mis langan feril að baki.
Kyrralíf
Á sýningunni Kyrralíf er athyglinni beint að kyrralífsmyndum eftir íslenska listamenn og þeirri glímu við form og liti sem þetta listform felur í sér. Á sýningunni eru rúmlega fjörtíu verk eftir íslenska listamenn einkum frá því um miðja 20. Þar á meðal Kristín Jónsdóttir, Kjarval og Louisa Matthiasdóttir.
Pleaser - Harpa Björnsdóttir
Pleaser er yfirskrift sýningar á nýjum og nýlegum verkum eftir myndlistarkonuna Hörpu Björnsdóttur. Verk Hörpu fjalla á einn eða annan hátt um hlutverk og stöðu listamannsins, þau skilaboð sem hann ber umhverfi sínu og þann táknheim sem listamenn sækja í.
Kl. 19:30-23:30
Kyrralífssmiðja með listamanninum Pétri Gaut
Smiðjan er tilvalin fyrir fjölskylduna og stendur öllum opin. Hér er skemmtilegt tækifæri til að skoða margar af helstu perlum íslenskrar myndlistar sem eru á sýningunni Kyrralíf og fá í leiðinni að spreyta sig á að mála/teikna uppstillingu með tilsögn frá listamanni í betri stofum Hafnarborgar.
Kl. 20:00
Fjölskylduleiðsögn
Farið verður í stutta leiðsögn um þær sýningar sem nú standa yfir í Hafnarborg með Auði Vésteinsdóttur.
Sýningarstjóraspjall - Kyrralíf
Þorbjörgu Br. Gunnarsdóttur annast leiðsögn um sýninguna.
Kl. 21:00-22:00
Hvað leynist bak við tjöldin ?
Gestum er boðið í ferðalag um húsnæði Hafnarborgar. Hver heimsókn er stutt og tekið er á móti gestum í litlum hópum, hámark 10 gestir í einu.
Listamannsspjall – Pleaser
Hörpu Björnsdóttur ræðir við gestir um sýninguna Pleaser sem er sýning á nýjum og nýlegum verkum eftir Hörpu.
Kl. 22:00–23:00
Allabaddarí fransí
Þau Sigríður Thorlacius söngkona, Ómar Guðjónsson gítarleikari og Guðmundur Óskar Guðmundsson bassaleikari verða með franskt prógram fyrir gesti Hafnarborgar. Flutt verða gömul og ný vinsæl dægurlög sem flutt hafa verið af ástsælum frönskum flytjendum.
Safnanæturleikurinn 2012
Fljúgðu, fljúgðu!
Safnaðu stimplum frá öllum söfnum sem þú heimsækir á Safnanótt.
Skilaðu a.m.k. fjórum réttum svörum og fjórum stimplum til
Höfuðborgarstofu, Aðalstræti 2. Mjög spennandi vinningar í boði
| Hafnarborg
Menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar Strandgata 34 220 Hafnarfjörður Ísland |
Opið alla daga kl. 12–17 og fimmtudaga til kl. 21. Lokað á þriðjudögum. www.hafnarborg.is hafnarborg@hafnarfjordur.is 585 5790 |