mynd tengd atburði: Listamannsspjall
29. janúar - 29. janúar 2012  kl. 15

Listamannsspjall

Sýning Pleaser er sýning á nýjum og nýlegum verkum eftir Hörpu Björnsdóttur í Sverrissal, en Harpa mun ræða við gesti sýningarinnar sunnudaginn 29. janúar kl. 15. Viðfangsefni hennar eru fjölbreytt og eitt af því sem hún hefur fengist við er hlutverk listamannsins og sá menningarlegi hugmynda- og ...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Námskeið fyrir börn 7-12 ára
22. janúar - 22. janúar 2012  Kyrralíf málað og teiknað

Námskeið fyrir börn 7-12 ára

Börnum á aldrinum 7- 12 ára er boðið að taka þátt í námskeiði í Hafnarborg sem verður 22. janúar - 12. febrúar (4 skipti) alla sunnudaga kl. 12-14 og leiðbeinandi er Klara Þórhallsdóttir. Þetta eru fjögur skipti þar sem nemendur fá að kynnast kyrralífsmyndum sem eiga sér langa sögu sem viðfangsefni myndlistarmanna. Í kyrralífsmyndum glíma listamenn...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Sýningarstjóraspjall
15. janúar - 15. janúar 2012  kl. 15

Sýningarstjóraspjall

Á sýningunni Kyrralíf er athyglinni beint að kyrralífsmyndum eftir íslenska listamenn og þeirri glímu við form og liti sem þetta listform felur í sér. Annar sýningastjórinn Þorbjörg Br. Gunnarsdóttir mun ræða við gesti um sýninguna sunnudaginn 15. janúar kl. 15.
Fjöldi verka er á sýningunni eftir ólíkar kynslóðir listamanna sem sumir ...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Sýningastjóraspjall
29. desember - 29. desember 2011  kl. 20

Sýningastjóraspjall

Á sýningunni Samræmi er að finna verk eftir þau Hildi Bjarnadóttur og Guðjón Ketilsson en þau eru bæði þekkt fyrir hugmyndaleg verk byggja á sterkum handverkshefðum. Þau eiga bæði að baki feril sem ber vitni næmi, sterkri rýmishugsun og einstöku handverki, Hildur með vísan í handverkshefðir og sögur kvenna en Guðjón hefur m.a. notað...
>>MEIRA

mynd tengd atburði: Sýningastjóraspjall
04. desember - 04. desember 2011  kl. 15

Sýningastjóraspjall

Á sýningunni Hamskipti er varpað ljósi á samvinnu þeirra Hildar Yeoman fatahönnuðar og tískuteiknara og Sögu Sigurðardóttur ljósmyndara sem eiga að baki ólíkan feril úr tískuheiminu. Þær hafa báðar vakið verðskuldaða athygli fyrir verk sín og skapað sé...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Syngjandi jól
03. desember - 03. desember 2011  kl. 9.30-18.30

Syngjandi jól

Syngjandi jól er árlegur viðburður og hefur verið haldið í Hafnarborg í 15 ár. En þá koma kórar frá Hafnarfirði og syngja jólalög auk þess sem leikskólarnir senda sína elstu nemendur til að syngja. Sumir eru að stíga sin fyrstu skref í söngnum á þessum viðburði. Sýningar safnsins verða lokaðar þennan dag.
mynd tengd atburði: Listamannsspjall - Guðjón Ketilsson
24. nóvember - 24. nóvember 2011  kl. 20

Listamannsspjall - Guðjón Ketilsson

Samræmi er sýning á verkum Hildar Bjarnadóttur og Guðjóns Ketilssonar, þau eru bæði þekkt fyrir hugmyndaleg verk sem byggja á sterkri handverkshefð. Guðjón Ketilsson mun spjalla við gesti um verk sín þan...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Kærleikskúlan 2011
12. nóvember - 26. nóvember 2011  

Kærleikskúlan 2011

Skapaðu þinn eigin heim heitir Kærleikskúlan 2011 og er eftir listakonuna Yoko Ono. Hún er seld dagana 12. - 26. október og 5. - 19. desember í Hafnarborg. Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra hefur staðið að útgáfu Kærleikskúlunnar frá árinu 2003 og eru kúlurnar því orðnar níu talsins. Frá upphafi hafa kúlurnar fengið frábærar viðtökur...
>>MEIRA

mynd tengd atburði: Leiðsögn - Hildur Yeoman og Saga Sigurðardóttir
06. nóvember - 06. nóvember 2011  kl. 15

Leiðsögn - Hildur Yeoman og Saga Sigurðardóttir

Hildur Yeoman fatahönnuður og Saga Sigurðardóttir ljósmyndari munu leiða gesti um sýninguna sína Hamskipti. Sýning þeirra í Sverrissal sameinar litríka og djarfa hönnun Hildar og ævintýralegar ljósmyndir Sögu í tjáningarríkri og lifandi innsetningu. Þær byggja upp stemningu með áferð, litum og hljóði sem búa til sterka sjónræna upplifun og kallast ...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Listamannsspjall
30. október - 30. október 2011  kl. 15

Listamannsspjall

Á sýningunni Samræmi eru verk eftir listamennina Guðjón Ketilsson og Hildi Bjarnadóttur. Hildur ræðir við gesti um verk sín og sýninguna. Hildur nýtir hefðbundnar vinnuaðferðir kvenna í verk sem lýsa tengslum við eigin uppruna um leið og þau vísa til almennra tengsla við menningu, sögu og náttúru. Verk hennar tengja saman kynslóðir ...
>>MEIRA

mynd tengd atburði: Listamannsspjall
20. október - 20. október 2011  kl. 20

Listamannsspjall

Næstkomandi fimmtudagskvöl kl. 20 mun Jeannette Castioni ræða við gesti um verk sitt Framtíðin er úrelt og sýninguna Í bili ásamt sýningastjóranum Ólöfu Gerði Sigfúsdóttur.
Jeannette (f.1968) stundaði nám í forvörslu í Flórens á ÍTalóu 1990-1993 og listnám við Accademia di belle Arti í Bologna 1998-2002 auk þess lauk hún BA-...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Bil beggja: Safnið sem vettvangur lista og lærdóms
15. október - 15. október 2011  Málþing

Bil beggja: Safnið sem vettvangur lista og lærdóms

Málþing með yfirskriftinni Bil beggja: Safnið sem vettvangur lista og lærdóms verður haldið næstkomandi laugardag í Hafnarborg. Málþingið er haldið í tengslum við sýninguna Í bili sem nú stendur yfir í safninu og lýkur 23. október.

Á málþinginu verða rædd tengsl listasafna við uppruna söfnunar. Velt verður upp spurningum um hlutve...
>>MEIRA

mynd tengd atburði: Listamannaspjall
02. október - 02. október 2011  kl. 15

Listamannaspjall

Ólöf Nordal og Olga Bergmann ræða efni sýningar Í bili við gesti safnsins. Olga hefur í verkum sínum fjallað um náttúruvísindi, genaverkfræði og möguleika raunvísindanna. Hún veltir upp spurningum um hlutverk safna sem þekkingarskapandi vetvangs. Ólöf Nordal leitast við í verkum sínum að kanna og rannsaka tilurð goðsagna, hún lei...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Fjölskylduleiðsögn
25. september - 25. september 2011  kl. 14

Fjölskylduleiðsögn

Í tengslum við sýninguna Í bili verður farið í fjölskylduleiðsögn. Gestum á öllum aldri verður boðið í leiðangur um safnið og saman rannsökum við furðuveröld listamannanna 16 sem taka þátt í sýningunni. En sýningin byggir á hugmynd um gamla hefð fyrir furðustofum þar sem mátti finna mergð dýrgripa og sjaldgæfra muna frá...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Listamannaspjall
15. september - 15. september 2011  kl. 20

Listamannaspjall

Daníel Björnsson og Ingirafn Steinarsson ræða verk sín og efni sýningar Í bili við gesti safnsins. Daníel hefur tekið þáttí fjölda samsýninga auk þess að halda einkasýningar. Hann hefur tekið að sér sýningarstjórn m.a. fyrir Listasafn Reykjavíkur og Gallerí Kling og Bang. Ingirafn lauk MFA gráðu við Listaháskó...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Listamannaspjall
11. september - 11. september 2011  kl. 15

Listamannaspjall

Samstarfverkefni listamannanna Ingunnar Fjólu Ingþórsdóttur og Þórdísar Jóhannesdóttur nefnist Hugsteypan. En þær munu ræða efni sýningar Í bili við gesti safnsins. Markmið sýningarinnar er að skapa vettvang fyrir gagnrýna umræðu um þekkingarsköpun og hlutverk listasafna í því samhengi. Nánar um sýninguna hér. >>MEIRA
mynd tengd atburði: Kallað eftir tillögum að sýningu haustið 2012
01. september - 01. nóvember 2011  

Kallað eftir tillögum að sýningu haustið 2012

Hafnarborg býður þér að senda inn tillögu að haustsýningu 2012.

Þetta er í annað sinn sem Hafnarborg sendir út kall eftir tillögum en það var einnig gert haustið 2010. Sýningin Í bili sem nú stendur yfir var valin úr athyglisverðum tillögum sem þá voru sendar inn. Markmiðið með því að óska eftir innsendum tillögum er að fá tækifæri...
>>MEIRA

mynd tengd atburði: Sýningastjórasspjall
28. ágúst - 28. ágúst 2011  kl. 15

Sýningastjórasspjall

Sýningin Í bili er samsýning þar sem 12 listamenn koma saman en þeir hafa jafnframt verið í krefjandi samstarfsvinnu undanfrarna mánuði ásamt sýningarstjóranum Ólöfu Gerði Sigfúsdóttur. En þetta er sýning sem er liður í haustverkefni Hafnarborgar sem var kynnt haustið 2010. Ólöf Gerður mun ræða við gesti um sýninguna og aðdraganda hennar. Hægt er a...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Sýningarstjóraspjall um sýninguna Hugvit
07. ágúst - 07. ágúst 2011  kl. 15

Sýningarstjóraspjall um sýninguna Hugvit

Pétur H. Ármannsson arkitekt er annar af tveimur sýningarstjórum sýningarinnar Hugvit en hann mun fjalla um sýninguna þar sem sýnd eru verk listamannsins, hönnuðarins og arkitektsins Einars Þorsteins Ásgeirssonar. Ókeypis aðgangur.
mynd tengd atburði: Íslenski safnadagurinn - Leiðsögn og listsmiðja
10. júlí - 10. júlí 2011  kl. 14

Íslenski safnadagurinn - Leiðsögn og listsmiðja

Íslenski safnadagurinn verður haldinn hátíðlegur í Hafnarborg þar sem boðið verður upp á leiðsagnir og listsmiðju enda safnadagurinn sérstaklega tileinkaður fjölskyldunni.   Boðið verður upp á fjölskylduleiðsögn kl. 14 um sýninguna Hugvit með verkum eftir Einar Þorstein Ásgeirsson og í kjölfarið verður vinnustofa þar sem unnið verður með ...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Íslenski safnadagurinn - leiðsögn
10. júlí - 10. júlí 2011  kl.15

Íslenski safnadagurinn - leiðsögn

Íslenski safnadagurinn hefur verið haldin hátíðlegur síðan árið 1997 að frumkvæði Íslandsdeildar ICOM. Söfn og aðrar menningarstofnanir opnar dyr sínar og að venju er ókeypis aðgangur. Hafnarborg mun bjóða upp á leiðsögn um yfirstandandi sumarsýningu með nýlegum verkum úr safneign í fylgd forstöðumanns Hafnarborgar Ólafar K. Sigurðardóttur.
mynd tengd atburði: Sýningastjóraspjall um sýninguna Hugvit
12. júní - 12. júní 2011  kl. 15

Sýningastjóraspjall um sýninguna Hugvit

Pétur H. Ármannsson, arkitekt er annar sýningastjóri sýningarinnar Hugvit, hann mun veita leiðsögn og spjall sunnudaginn 12. júní kl. 15. Á sýningunni eru verk Einars Þorsteins hönnuðar (f. 1942) en verk hans eru að flestu leyti einstæð í samhengi íslenskrar hönnunar og byggingarlistar. Hægt er að sjá nánari upplýsingar um s...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Fjölskylduleiðsögn og vinnustofa
12. júní - 12. júní 2011  kl. 14

Fjölskylduleiðsögn og vinnustofa

Í tengslum við sýninguna Hugvit verður sett upp vinnustofa fyrir fjölskylduna sunnudaginn 12. júní kl. 14. Farið verður í létta leiðsögn um sýninguna og í framhaldi af því verður vinnustofa. Á vinnustofunni verður unnið út frá hugmyndum Einars Þorsteinns, hönnuðar, verk hans könnuð og sköpunargleði þátttakenda virkjuð. Þar gefst kostur á að ky...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Bjartir Dagar - Ratleikur
04. júní - 04. júní 2011  kl. 14

Bjartir Dagar - Ratleikur

Ratleikur um höggmyndagarðinn á Víðistaðatúni þar sem tvinnast saman skemmtileg fræðsla og útivist fyrir alla fjölskylduna. Mörg forvitnileg listaverk eru á túninu og verða þátttakendur margs vísari um ævintýraleg verk eins og himnastólinn eftir Sverri Ólafsson sem ber yfirskriftina Hundrað ára einsemd og síma frönsku listakonunnar Soniu Renard – S...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Bjartir Dagar - Styttuganga
04. júní - 04. júní 2011  kl. 16

Bjartir Dagar - Styttuganga

Gengið verður um miðbæ Hafnarfjarðar og útilistaverkin á svæðinu skoðuð með leiðsögn. Fjallað verður verk sem margir þekkja vel en fá nú tækifæri til að kynnast enn betur auk þess sem bent verður á staði og verk sem eru minna áberandi en gefa þó umhverfinu líf. Gengið frá Hafnarborg.
mynd tengd atburði: Bjartir Dagar - Leiðsögn
01. júní - 01. júní 2011  kl. 20

Bjartir Dagar - Leiðsögn

Leiðsögn verður um sýningu á verkum JBK Ransú og Guðrúnar Bergsdóttur í samstarfi við listahátíðina List án landamæra. Hátíðin er í ár haldin í áttunda sinn en hátíðin var fyrst haldin á Evrópuári fatlaðra árið 2003 – 2004.  Markmið hátíðarinnar er að koma list fólks með fötlun á framfæri og að koma á samstarfi milli fatlaðs og ófatlaðs listaf...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Bjartir dagar - Hádegistónleikar
01. júní - 01. júní 2011  kl. 12

Bjartir dagar - Hádegistónleikar

Jóhann Friðgeir Valdimarsson tenór, einn ástsælasti söngvari þjóðarinnar flytur íslenskar söngperlur ásamt píanóleikaranum Antoníu Hevesí. Jóhann Friðgeir hefur sungið fjölda einsöngstónleika á Íslandi og meginlandi Evrópu þar sem hann hefur ávallt fengið framúrskarandi viðtökur og dóma.
mynd tengd atburði: Bjartir dagar
31. maí - 05. júní 2011  Dagskrá Hafnarborgar

Bjartir dagar

Bjartir dagar er lista- og menningarhátíð í Hafnarfirði sem er haldin dagana 31. maí – 5. júní. Á dagskránni má finna fjölbreytta viðburði, en eftirfarandi viðburðir verða í Hafnarborg. Hægt er að lesa alla dagskránna á vef Hafnarfjarðarbæjar hér.


Dagskrá Hafnarborgar.


Miðvikudag 1. júní - Gakktu í bæinn...
>>MEIRA

mynd tengd atburði: Sýningastjóraspjall um sýninguna Hugvit
26. maí - 26. maí 2011  kl. 20

Sýningastjóraspjall um sýninguna Hugvit

Guðmundur Oddur Magnússon eða Goddur er annar sýningastjóri sýningarinnar Hugvit, hann mun veita leiðsögn og spjall fimmtudagskvöldið 26. maí kl. 20. Á sýningunni eru verk Einars Þorsteins hönnuðar (f. 1942) en verk hans eru að flestu leyti einstæð í samhengi íslenskrar hönnunar og byggingarlistar. Hægt er að sjá nánari upplýsing...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Listamannsspjall
12. maí - 12. maí 2011  kl. 15

Listamannsspjall

Einar Þorsteinn mun ræða um verk sín og hugmyndir við gesti sýningarinnar Hugvit. Verk Einars eru að flestu leyti einstæð í samhengi íslenskrar hönnunar og byggingarlistar. Hann lauk námi í arkitektúr við Tækniháskólann í Hannover í Þýskalandi árið 1969 og stundaði framhaldsnám og störf hjá arkitektinum Frei Otto í Stuttgart. Meira >>MEIRA
mynd tengd atburði: Listamannsspjall
08. maí - 08. maí 2011  kl. 15

Listamannsspjall

Guðrún Bergsdóttir listakona og Margrét M. Norðdahl framkvæmdastýra hátíðarinnar List án landamæra munu taka þátt í listamannsspjalli um sýninguna Abstrakt í Hafnarborg sem unnin er í samstarfi við hátíðina. Allir eru velkomnir og frír aðgangur. Meira hér.
mynd tengd atburði: Listamannsspjall
17. apríl - 17. apríl 2011  kl. 15

Listamannsspjall

Þorri Hringsson (f. 1966) stundaði framhaldsnámi í Jan Van Eyck-akademíuna í Maastricht í Hollandi 1989 - 1991. Þorri hefur tekið þátt í fjölda sýninga bæði á Íslandi og erlendis. Verk hans eru í eigu listasafna og innlendra og erlendra safnara. Hann mun fjalla um verk sín á sýningunni Varanlegt augnablik sunnudaginn 17. april kl. 15....
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Hádegistónleikar
07. apríl - 07. apríl 2011  kl. 12-12:30

Hádegistónleikar

Á Hádegistónleikum Hafnarborgar verður gestur okkar næst Sigríðu Aðalsteinsdóttir mezzósópran. Hún lauk burtfararprófi frá Söngskólanum í Reykjavík vorið 1995.
Aðalkennarar hennar þar voru Elísabet F. Eiríksdóttir og Þuríður Pálsdóttir. Haustið 1995 hóf hún nám við óperudeild Tónlistarskólans í Vínarborg og ári síðar við...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Listamannsspjall
27. mars - 27. mars 2011  kl. 15

Listamannsspjall

Myndlistarmennirnir Sigtryggu Bjarni Baldvinsson og Þorri Hringsson nota báðir náttúruna og landslagið sem uppsprettur hugmynda í verkum sínum. Þeir eru þekktir fyrir málverk sem endurspegla persónulega nálgun við áþekk viðfangsefni en fara hvor sína leið í nálgun sinni við málverkið og eiginleika þess.
Sigtryggur Bjarni Baldvinsson (f. 1966)...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Sýningastjóraspjall
13. mars - 13. mars 2011  kl. 15

Sýningastjóraspjall

Hanna Styrmisdóttir sýningarstjóri annast leiðsögn um sýninguna Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands eftir Libia Castro og Ólafur Ólafsson. Nánar um sýninguna hér. Ókeypis aðgangur og allir velkomnir
mynd tengd atburði: Tríó Reykjavíkur - Frumflutningur á nýju tónverki
06. mars - 06. febrúar 2011  kl. 20

Tríó Reykjavíkur - Frumflutningur á nýju tónverki

Næstkomandi sunnudag kl. 20 verða síðustu tónleikar vetrarins í tónleikaröð Tríós Reykjavíkur í Hafnarborg. Tríó Reykjavíkur er staðarkammerhópur Listaháskóla Íslands. Efnt var til samkeppni um verk til frumflutnings á tónleikunum meðal tónsmíðanema skólans. Verk eftir Halldór Smárason, ungan tónsmíðanema frá Ísafirði varð fyrir valinu. Verkið ber ...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Hádegistónleikar
03. mars - 03. mars 2011  kl. 12

Hádegistónleikar

 Hádegistónleikar Hafnarborgar fara ávalt fram fyrsta fimmtudag hvers mánaðar. Gestur á Hádegistónleikum Hafnarborgar 3. mars verður Valgerður Guðrún Guðnadóttir en listrænn stjórnandi að venju er Antonía Hevesi sem auk þess leikur undir á píanó. Frír aðgangur og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Listamannasspjall
27. febrúar - 27. febrúar 2011  kl. 15

Listamannasspjall

Libia Castro og Ólafur Ólafsson hafa starfað saman frá árinu 1997 og eru þekkt fyrir verk sem einkennast af opnum og gagnrýnum vinnubrögðum  þar sem listamennirnir takast á við spurningar úr samtímanum, greina þær og setja fram í listrænni útfærslu. Þau verða með listamannasspjall 27. febrúar kl. 15. Hægt er að lesa nánar um yfirstan...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Safnanótt
11. febrúar - 13. febrúar 2011  

Safnanótt

Hafnarborg tekur nú þátt í Safnanótt eins og önnur söfn á höfuðborgarsvæðinu. Það verður mikið um að vera bæði leiðsagnir, tónlistaratriði, heimsókn í geymslurnar og vinnustofa fyrir fjölskylduna. Nú hefur verið ákeðið að framlengja safnanótt yfir helgina og verða viðburðir alla helgina, en þess má geta að allir viðburðirnir eru ókeypis.

>>MEIRA
mynd tengd atburði: Sýningastjóraspjall
30. janúar - 30. janúar 2011  kl. 15

Sýningastjóraspjall

Ólöf K. Sigurðardóttir sýningarstjóri og forstöðumaður Hafnarborgar segir frá sýningunni Brot úr náttúrunni –  Eiríkur Smith abstrakt 1957- 1963. Nánar um sýninguna hér. Ókeypis aðgangur og allir velkomnir
mynd tengd atburði: Listamannsspjall
09. janúar - 09. janúar 2011  kl. 15

Listamannsspjall

Stefán Jónsson ræðir efni sýningar sinnar Kjarvalar við gesti safnsins. Á þessari sýningu sækir Stefán í smiðju listamannssins Jóhannesar Sveinsssonar Kjarvals (1885-1972). Nánar um sýninguna hér. Ókeypis aðgangur og allir velkomnir.

>>MEIRA
mynd tengd atburði: Listamannsspjall - Eirún Sigurðardóttir
02. janúar - 02. janúar 2011  kl. 15

Listamannsspjall - Eirún Sigurðardóttir

Eirún Sigurðardóttir meðlimur Gjörningaklúbbsins ræðir efni sýningar sinnar við gesti safnsins. Gjörningaklúbbinn skipa Eirún Sigurðardóttir, Jóní Jónsdóttir og Sigrún Hrólfsdóttir. Hægt er að lesa meira um sýninguna hér. Ókeypis aðgangur og allir velkomnir.
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Kærleikskúlan 2010
04. desember - 18. desember 2010  

Kærleikskúlan 2010

Kærleikskúlan er seld dagana 4. - 18. desember í Hafnarborg. Allur ágóði sölunnar rennur óskiptur til brýnna verkefna í þágu fatlaðra barna og ungmenna. Hafnarborg hefur til sölu þrjár Kærleikskúlur, kærleikskúlu ársins 2010 Fjarlægð eftir Katrínu Sigurðardóttur, auk hennar verða til sölu eldri kærleikskúlur Hringur...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Syngjandi jól
04. desember - 04. desember 2010  kl. 9.30-18.30

Syngjandi jól

Syngjandi jól er árlegur viðburður og hefur verið haldið í Hafnarborg í 14 ár. En þá koma kórar frá Hafnarfirði og syngja jólalög auk þess sem leikskólarnir senda sína elstu nemendur til að syngja. Sumir eru að stíga sin fyrstu skref í söngnum á þessum viðburði. Sýningar safnsins verða lokaðar þennan dag.

Dagsrkáin he...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Listamannsspjall
07. nóvember - 07. nóvember 2010  kl. 15

Listamannsspjall

Sigrún Hrólfsdóttir meðlimur Gjörningaklúbbsins ræðir efni sýningar sinnar við gesti safnsins. Gjörningaklúbbinn skipa Eirún Sigurðardóttir, Jóní Jónsdóttir og Sigrún Hrólfsdóttir. Hægt er að lesa meira um sýninguna hér. Ókeypis aðgangur og allir velkomnir.

mynd tengd atburði: Listamannsspjall
31. október - 31. október 2010  kl. 15

Listamannsspjall

Eggert Pétursson tekur þátt í leiðsögn um ný opnaða sýningu sína í Sverrissal. Eggert hefur um árabil málað íslenska flóru og er meðal annars þekktur fyrir teikningar sínar í veglegri útgáfu um flóru Íslands.. Hægt er að lesa meira um sýninguna hér. Ókeypis aðgangur.
...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Sýningastjóraspjall
24. október - 24. október 2010  kl. 15

Sýningastjóraspjall

Yfirstandandi sýning Að elta fólk og drekka mjólk lýkur þann 24. október, gestum er boðið upp á leiðsögn þann daginn um þessa vinsælu sýningu í fylgd með sýningarstjóranum Kristínu Dagmar Jóhannesdóttur. Sýningin inniheldur fjölbreytt verk og fjallar um húmor í íslenskri myndlist, en titillinn vísar í verk eftir Sigurð Guðmundsson sem er einnig að ...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Málþing: Að grína í samfélagið
25. september - 25. september 2010  

Málþing: Að grína í samfélagið

Í tengslum við sýningu Hafnarborgar “Að drekka mjólk og elta fólk” stendur Þjóðfræðistofa fyrir málþingi um húmor sem samfélagsrýni og valdatæki.  Þar munu fræði- og listamenn stíga á stokk og varpa ljósi á hinar ýmsu birtingarmyndir húmors í menningar- og samfélagslegu samhengi.


Á meðal þátttakenda eru:
<...
>>MEIRA

mynd tengd atburði: Leiðsögn
08. ágúst - 08. ágúst 2010  kl. 15

Leiðsögn

Leiðsögn um sýninguna Formlegt aðhald verk eftir Eirík Smith 1951- 1957 í umsjón aðstoðarsýningarstjórans Heiðars Kára Rannverssonar. Ókeypis aðgangur.
mynd tengd atburði: Íslenski safnadagurinn - leiðsögn
11. júlí - 11. júlí 2010  kl. 13

Íslenski safnadagurinn - leiðsögn

Íslenski safnadagurinn hefur verið haldin hátíðlegur síðan árið 1997 að frumkvæði Íslandsdeildar ICOM. Söfn og aðrar menningarstofnanir opnar dyr sínar og að venju er ókeypis aðgangur. Hafnarborg mun bjóða upp á leiðsögn um yfirstandandi sýningu Formlegt aðhald verks Eiríks Smith í fylgd sýningarstjórans og forstöðumanns Hafnarborgar Ólafa...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Íslenski safnadagurinn - Listsmiðja
11. júlí - 11. júlí 2010  kl. 14 - 16

Íslenski safnadagurinn - Listsmiðja

Í tilefni Íslenska safnadagsins mun Hafnarborg bjóða upp á opna formsmiðju fyrir alla fjölskylduna þar sem yfirstandandi sýning er notuð sem innblástur en það eru verk eftir Eirík Smith frá árunum 1951 -1957. Ókeypis aðgangur.
mynd tengd atburði: Leiðsögn
27. júní - 27. júní 2010  kl. 15

Leiðsögn

Leiðsögn um sýninguna Formlegt aðhald - verk Eiríks Smith 1951 - 1957 í umsjón sýningarstjórans og forstöðumanns Hafnarborgar, Ólafar K. Sigurðardóttur og aðstoðarsýningarstjórans Heiðars Kára Rannverssonar. Ókeypis aðgangur.
mynd tengd atburði: Listamannsspjall
20. júní - 20. júní 2010  kl. 15

Listamannsspjall

Erling T.V. Klingenberg mun taka þátt í listamannsspjalli um sýninguna sína Það er erfitt að vera listamaður í líkama rokkstjörnu. Ókeypis.
mynd tengd atburði: Bjartir Dagar - Listamannsspjall
03. júní - 03. júní 2010  kl. 21

Bjartir Dagar - Listamannsspjall

Erling T.V. Klingenberg segir frá sýningunni sinni sem ber yfirskriftina Það er erfitt að vera listamaður í líkama rokkstjörnu.  Safnið verður opið til kl. 22 og er ókeypis inn á alla viðburði.
mynd tengd atburði: Bjartir Dagar - Leiðsögn
03. júní - 03. júní 2010  kl. 20

Bjartir Dagar - Leiðsögn

Leiðsögn um sýninguna Staðir verk eftir Friederike von Rauch í umsjón Ólafar K. Sigurðardóttur forstöðumanns Hafnarborgar. Sýningin er framlag Hafnarborgar til Listahátíðar  í Reykjavík.
mynd tengd atburði: Fyrirlestur í samstarfi við Safnaráð
03. júní - 03. júní 2010  kl. 12

Fyrirlestur í samstarfi við Safnaráð

Fimmtudaginn 3. júní kl. 12 heldur bandaríski fræðimaðurinn og sýningarstjórinn Elizabeth Schlatter hádegisfyrirlestur um sýningarstjórn í fyrirlestrarsal Þjóminjasafns. Hún fjallar um víkkað svið sýningarstjórnar (curatorial activity), óljósan skilning á hlutverki sýningarstjórans og fagmennsku sem birtist í sjálfhverfri fræðilegri skoðun, ...
>>MEIRA

mynd tengd atburði: Staðir - Örnámskeið
29. maí - 29. maí 2010  kl. 14 - 16

Staðir - Örnámskeið

Stutt námskeið fyrir börn á grunnskólaaldri þar sem safnið verður rannsakað með það í huga að finna áhugaverða staði þar sem form og stemning skapa einstakan stað til að teikna. Ljósmyndir Friederike von Rauch verða skoðaðar og nálgun hennar við staði notuð sem innblástur. Örnámskeiðin eru ókeypis og öllum opin á meðan pláss leyfir.
mynd tengd atburði: Staðir - Fyrirlestur
27. maí - 27. maí 2010  kl. 20

Staðir - Fyrirlestur

Friederike von Rauch segir frá verkum sínum og ferli sem ljósmyndara. Hún segir frá nálgun sinni við staði og þeirri tækni sem hún notar við ljósmyndavinnu sína. Ljósmyndir hennar lýsa eyðilegum stöðum útfrá óvenjulegum sjónarhornum. Með sérstakri næmni nær hún að vekja þá til lífs og kalla fram einkenni þeirra með einfaldri ljósmyndunartækni þar s...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Samtal við nemendur LHÍ
09. maí - 09. maí 2010  kl. 15

Samtal við nemendur LHÍ

Næstkomandi sunnudag munu nemdendur Listaháskóla Íslands taka þátt í leiðsögn og segja frá kassabílum sem þau hönnuðu sérstaklega fyrir sýninguna Í barnastærðum innblásna af hugmyndum frægra hönnuða. Kassabílunum hefur verið sérstaklega vel tekið en ungir sýningargestir hafa haft tækifæri til að prufa kassabílana með því að keyra um s...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Örnámskeið
25. apríl - 25. apríl 2010  kl. 14 - 16

Örnámskeið

Sköpunarsmiðja þar sem sýningin Í barnastærðum er notuð sem innblástur í hugleiðingar um hönnun og vinnu á verkstæði þar sem gestir fá tækifæri til að vinna útfrá hugmyndum sem birtast í sýningunni. Örnámskeið fyrir börn og fullorðna í fylgd með þeim. Þátttaka er ókeypis og öllum heimil meðan húsrúm leyfir. Örnámskeiðið er hluti af Barnamenningarhá...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Örnámskeið
22. apríl - 22. apríl 2010  kl. 14

Örnámskeið

Sköpunarsmiðja á sumardaginn fyrsta þar sem sýningin Í barnastærðum er notuð sem innblástur í hugleiðingar um hönnun og vinnu á verkstæði þar sem gestir fá tækifæri til að vinna útfrá hugmyndum sem birtast í sýningunni. Örnámskeið fyrir börn og fullorðna í fylgd með þeim. Þátttaka er ókeypis og öllum heimil meðan húsrúm leyfir. Örnámskeið er á dags...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Samtal við hönnuð
18. apríl - 18. apríl 2010  kl. 15

Samtal við hönnuð

Gunnar Magnússon er einn af afkastamestu húsgagnahönnuðum landsins og hafa fjölmargir hlutir eftir hann farið í almenna framleiðslu. Hann er því á meðal þeirra manna sem mótað hafa umhverfi okkar á síðustu áratugum. Gunnar á hluti á sýningunni sem hann hannaði fyrir sín eigin börn og aldrei fóru í almenna framleiðslu. En mikill hluti þess sem hanna...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Fyrirlestur með Guðlaugi Valgarðssyni
08. apríl - 08. apríl 2010  kl. 20

Fyrirlestur með Guðlaugi Valgarðssyni

Listamaðurinn og hönnuðurinn Guðlaugur Valgarðsson ætlar að fjalla um verk sitt
Joy(n) á sýningunni Í barnastærðum sem nú stendur yfir.Verkið sem um ræðir er bæði rennibraut, hús(gagn) og vegasalt. Hér er sýndur hluti af þeirri rannsóknarvinnu sem á sér stað þegar unnið er að nýjum hugmyndum. Guðlaugur er menntaður f...
>>MEIRA

mynd tengd atburði: Örnámskeið
28. mars - 28. mars 2010  kl. 14

Örnámskeið

Sköpunarsmiðja þar sem sýningin Í barnastærðum er notuð sem innblástur í hugleiðingar um hönnun og vinnu á verkstæði þar sem gestir fá tækifæri til að vinna útfrá hugmyndum sem birtast í sýningunni. Örnámskeið fyrir börn og fullorðna í fylgd með þeim. Þátttaka er ókeypis og öllum heimil meðan húsrúm leyfir.
mynd tengd atburði: Samtal við hönnuði á HönnunarMars
20. mars - 20. mars 2010  kl. 15

Samtal við hönnuði á HönnunarMars

Hanna Jónsdóttir vöruhönnuður, Haraldur Civelek grafískur hönnuður og Ragnheiður Ösp Sigurðardóttir vöruhönnuður kynna nýsköpunarverkefni sem unnin voru sérstaklega í tilefni sýningarinnar Í barnastærðum. Á sýningunni er íslensk og alþjóðleg hönnun fyrir börn og tókust þau á hendur það verkefni að hanna fyrir börn. Verkefnið er unnið í samstarfi vi...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Sýningarstjóraspjall
14. mars - 14. mars 2010  kl. 15

Sýningarstjóraspjall

Tinna Gunnarsdóttir hönnuður og sýningarstjóri sýningarinnar Í barnastærðum annast leiðsögn um sýninguna. Á sýningunni er bæði íslensk og alþjóðleg hönnun en eitt af meginmarkmiðum hennar er að skoða verk íslenskra hönnuða. Mikill hluti þess sem unnið hefur verið hér á landi eru húsgögn og leikföng sem hönnuðir, arkitektar og listamenn hafa unnið f...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Örnámskeið
14. mars - 14. mars 2010  kl. 14 - 16

Örnámskeið

Sköpunarsmiðja þar sem sýningin Í barnastærðum er notuð sem innblástur í hugleiðingar um hönnun og vinnu á verkstæði þar sem gestir fá tækifæri til að vinna útfrá hugmyndum sem birtast í sýningunni. Örnámskeið fyrir börn og fullorðna í fylgd með þeim. Þátttaka er ókeypis og öllum heimil meðan húsrúm leyfir.
mynd tengd atburði: Leiðsögn um sýningarnar Endalokin og Ljósbrot
28. febrúar - 28. febrúar 2010  kl. 15

Leiðsögn um sýningarnar Endalokin og Ljósbrot

Leiðsögn um sýningarnar Endalokin og Ljósbrot en jafnframt síðasti sýningardagur. Ólöf K. Sigurðardóttir forstöðumaður Hafnarborg mun annast leiðsagnirnar ásamt Ingunni Fjólu Ingþórsdóttur og Páli Hauki Björnssyni fyrirsætunni í verkinu Endalokin verk eftir Ragnar Kjartansson sem var framlag Íslands til Feneyjat...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Fjölskylduleiðsögn
21. febrúar - 21. febrúar 2010  kl. 14

Fjölskylduleiðsögn

Fjölskyldudagur í safninu þar sem börn og foreldrar geta hlustað á leiðsögn um sýningarnar The End verk eftir Ragnar Kjartansson og Ljósbrot verk eftir Ingunni Fjólu Ingþórsdóttur. Ókeypis aðgangur.
mynd tengd atburði: Safnanótt
12. febrúar - 12. febrúar 2010  kl.19 - 24

Safnanótt

Hafnarborg tekur nú þátt í Safnanótt eins og önnur söfn á höfuðborgarsvæðinu. Það verður mikið um að vera bæði leiðsagnir, tónlistaratriði, heimsókn í geymslurnar og styttuganga um miðbæ Hafnarfjarðar. Allir viðburðirnir eru ókeypis.
Dagskrá:
Opin listsmiðja
fyrir alla fjölskylduna allt kvöldið– Á sýningun...
>>MEIRA

mynd tengd atburði: Listamannsspjall
07. febrúar - 07. febrúar 2010  kl. 15

Listamannsspjall

Ingunn Þóra Ingþórsdóttir tekur þátt í listamannsspjalli um sýninguna sína Ljósbrot. Ókeypis aðgangur.
mynd tengd atburði: Málþing um þátttöku Íslands í Feneyjartvíæringnum
21. janúar - 21. janúar 2010  kl. 20

Málþing um þátttöku Íslands í Feneyjartvíæringnum

Í tilefni þess að framlag Íslands til Feneyjartvíæringsins 2009, Endalokin eftir Ragnar Kjartansson, er nú sýnt í Hafnarborg verður efnt til umræðu um tvíæringinn og þátttöku Íslands þar. Feneyjartvíæringurinn er einn mikilvægasti viðburður heims á sviði samtímalistar og hafa Íslendingar verið þátttakendur frá árinu 1960 þegar þeir Kjarval o...
>>MEIRA

mynd tengd atburði: Leiðsögn um Endalokin
17. janúar - 17. janúar 2010  kl. 15

Leiðsögn um Endalokin

Leiðsögn þar sem fjallað verður um ENDALOKIN í Feneyjum og á Íslandi og munu Ragnar Kjartansson, Markús Þór Andrésson og Dorothée Kirch taka þátt í leiðsögninni.
mynd tengd atburði: Kærleikskúlan 2009
05. desember - 19. desember 2009  

Kærleikskúlan 2009

Nú um jólin gefur Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra út Kærleikskúluna í sjöunda sinn. Tilgangur með sölu kúlunnar er að auðga líf fatlaðra barna og ungmenna, en ágóðinn rennur beint í starfssemi Reykjadals. Kærleikskúlan er til sölu í safnbúð Hafnarborgar.
Í ár er það listamaðurinn Hreinn Friðfinnsson sem leggur félaginu lið en hann er einn af...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Fjölskylduleiðsögn og listsmiðja
29. nóvember - 29. nóvember 2009  kl. 14

Fjölskylduleiðsögn og listsmiðja

Listsmiðja og fjölskylduleiðsögn um sýninguna Hvar er klukkan? með verkum eftir Davíð Örn Halldórsson. Sýningin verður skoðuð og sest niður til að skapa klippiverk með sýninguna sem innblástur. Allir velkomnir og ókeypis inn.
mynd tengd atburði: Upplestur og bókakynning
26. nóvember - 26. nóvember 2009  kl. 20

Upplestur og bókakynning

Hafnarborg efnir til bókakynningar en þrír rithöfundar lesa úr bókum sínum en einnig verða kynntar tvær nýjar útgáfur sem tengjast sýningunum sem nú standa í Hafnarborg.

Höfundarnir sem lesa eru þær Ragna Sigurðardóttir, Oddný Eir Ævarsdóttir og Kristín Ómarsdóttir en einnig verða kynnar bækurnar Ofhlæði og Úrvalið...
>>MEIRA

mynd tengd atburði: Listamannsspjall
22. nóvember - 22. nóvember 2009  kl. 15

Listamannsspjall

Davíð Örn Halldórsson tekur þátt í listamannsspjalli um sýninguna sína Hvar er klukkan? en þar getur að líta málverk og innsetningu. Ókeypis aðgangur.
mynd tengd atburði: Sýningarstjóraspjall
15. nóvember - 15. nóvember 2009  kl. 15

Sýningarstjóraspjall

Sýningarstjóraspjall með Einari Fal Ingólfssyni um sýninguna Úrvalið sem sýnir ljósmyndir eftir helstu ljósmyndara Íslands. Ókeypis aðgangur.
mynd tengd atburði: Leiðsögn um sýninguna Lífróður
18. október - 18. október 2009  kl. 15

Leiðsögn um sýninguna Lífróður

Ólöf K. Sigurðardóttir forstöðumaður Hafnarborgar mun annast leiðsögn um sýninguna Lífróður - föðurland vort hálft er hafið. Ókeypis aðgangur.
mynd tengd atburði: Fjölskylduleiðsögn
11. október - 11. október 2009  kl. 14

Fjölskylduleiðsögn

Fjölskylduleiðsögn í tengslum við sýninguna Lífróður - föðurland vort hálft er hafið fyrir börn og foreldra. Skoðuð verða nokkur verk á sýningunni og kíkt í sjótöskuna sem er fyrir yngstu sýningargestina þar sem börnin geta sett á sig sjóhatt og tengt hluti í töskunni við verk á sýningunni. Ókeypis aðgangur.
mynd tengd atburði: Síðasti valsinn
26. september - 26. september 2009  kl. 16 í Bæjarbíó

Síðasti valsinn

Síðasti valsinn eftir Margréti Jónasdóttur og Magnús Viðar Sigurðsson segir frá hinu örlagaríka Þorskastríði. Mynd á vegum Kvikmyndasafns Íslands sýnd í Bæjarbíói í tengslum við sýninguna Lífróður. Miðasala fer fram í Bæjarbíói v/Strandgötu í Hafnarfirði.
mynd tengd atburði: Hafið
25. september - 25. september 2009  kl. 20 í Bæjarbíó

Hafið

Kvikmyndin Hafið eftir Baltasar Kormák er byggð á samnefndu leikriti eftir Ólaf Hauk Símonarson. Sýningin á vegum Kvikmyndasafns Íslands í Bæjarbíói í tengslum við Lífróður.
mynd tengd atburði: Verstöðin Ísland III+IV hluti
24. september - 24. september 2009  kl. 20 í Bæjarbíó

Verstöðin Ísland III+IV hluti

Verstöðin Ísland 3 og 4. hluti eftir Erlend Sveinsson verður sýndur í Bæjarbíói í kvöld kl. 20. Kvikmynd á vegum Kvikmyndasafns Íslands í tengslum við sýninguna Lífróður.
mynd tengd atburði: Verstöðin Ísland I+II hluti
23. september - 23. september 2009  kl. 20 í Bæjarbíó

Verstöðin Ísland I+II hluti

Verstöðin Ísland fyrsti og annar hluti Frá árum til véla og Bygging nýst Íslands eftir Erlend Sveinsson. Kvikmynd á vegum Kvikmyndasafns Íslands í tengslum við Lífróður sýninguna sýnd í bæjarbíó kl. 20.
mynd tengd atburði: Ingaló
22. september - 22. september 2009  kl. 20 í Bæjarbíó

Ingaló

Kvikmyndin Ingaló eftir Ásdísi Thoroddsen sem vann til verðlauna á kvikmyndahátíðinni í Rouen sem besta myndin og Sólveig Arnarsdóttir sem besta leikkonan árið 1993. Kvikmyndasafn Íslands, Bæjarbíó, Strandgata 6, Hafnarfirði.
mynd tengd atburði: Silfur Hafsins/Lífið er salftfiskur
21. september - 21. september 2009  kl. 20 í Bæjarbíó

Silfur Hafsins/Lífið er salftfiskur

Silfur hafsins / Lífið er saltfiskur eftir Erlend Sveinsson. Kvikmyndasafn Íslands, Bæjarbíó, Strandgata 6, Hafnarfirði.
mynd tengd atburði: Björgunarafrekið við Látrabjarg
08. september - 12. september 2009  í Bæjarbíói

Björgunarafrekið við Látrabjarg

Heimildamyndin Björgunarafrekið við Látrarbjarg verður sýnd á vegum Kvikmyndasafns Íslands bæði þriðjudaginn 8. september kl. 20 og laugardaginn 12. september kl. 16 í Bæjarbíói í tengslum við sýninguna Lífróður. Bæjarbíó, Strandgata 6, Hafnarfirði.
mynd tengd atburði: Lífróður málþing
05. september - 05. september 2009  kl. 13-15.30

Lífróður málþing

Í tengslum við sýningu Hafnarborgar Lífróður heldur Þjóðfræðistofa málþing um hafið í orðræðu og sjálfsmynd Íslendinga.  Þar munu fræði- og listamenn koma saman og ræða inntak sýningarinnar ásamt aðstandendum hennar. Þá verður víða leitað fanga og velt upp spurningum bæði um sky...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Sýningarstjóraspjall
30. ágúst - 30. ágúst 2009  kl. 15

Sýningarstjóraspjall

Sýningarstjórarnir Dorthée Kirch og Markús Þór Andrésson munu annast leiðsögn um sýninguna Lífróður - föðurland vort hálft er hafið sunnudaginn 30. ágúst kl. 15. Þau hafa undanfarið vakið mikla athygli fyrir áhugaverð verkefni nú síðast á vegum Listahátíðar í Reykjavík í fjórum vitum í fjórum landshornum og framlag Íslands til Feneyjartvíæ...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Leiðsögn um sýninguna Safn(arar)
16. ágúst - 16. ágúst 2009  kl. 15

Leiðsögn um sýninguna Safn(arar)

Safnararnir Sverrir Kristinsson og Bragi Guðlaugsson sem eiga verk á sýningunni Safn(arar) verða á staðnum og ætla að taka þátt í leiðsögn um sýninguna ásamt sýningarstjóranum og forstöðumanni Hafnarborgar Ólöfu K. Sigurðardóttur. Allir eru velkomnir og er leiðsögnin ókeypis.
Síðasti sýningardagur.
mynd tengd atburði: Leiðsögn um sýninguna Safn(arar)
09. ágúst - 09. ágúst 2009  kl. 15

Leiðsögn um sýninguna Safn(arar)

Safnararnir Ingunn Wernersdóttir, Gunnar Dungal og Þórdís Alda Sigurðardóttir sem eiga verk á sýningunni Safn(arar) taka þátt í leiðsögn um sýninguna.
Allir eru velkomnir og er ókeypis aðgangur.
mynd tengd atburði: Sýningarstjóraspjall
28. júní - 28. júní 2009  kl. 15

Sýningarstjóraspjall

Ólöf K. Sigurðardóttir, forstöðumaður Hafnarborgar og sýningarstjóri sýningarinnar Safn(arar) verður með leiðsögn um sýninguna. Á sýningunni eru mörg verk eftir helstu listamenn samtímans á Íslandi og eru verkin bæði frá upprunalegu stofngjöf Hafnarborgar og frá söfnurunum Gunnari Dungal, Sverri Kristjánssyni, Ingunni Wernersdóttur og Brag...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Samræður við safnara
24. júní - 24. júní 2009  kl. 16

Samræður við safnara

Opnar samræður við safnarana Gunnar Dungal og konu hans Þórdísi Öldu, Ingunn Wernersdóttir, Braga Guðlaugsson og Sverri Kristinsson í tilefni sýningarinnar Safn(arar) sem opnar sama dag kl. 17. En verk á sýningunni eru frá ofangreindum söfnurum auk verka úr upprunalega safnkosti Hafnarborgar. 
Viðburðurinn er opinn fyrir alla og ...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Listamannsspjall
01. júní - 01. júní 2009  með listamanninum kl. 15

Listamannsspjall

Jónína Guðnadóttir tekur þátt í leiðsögn um sýninguna sína Vættir en á sýningunni eru bæði skúlptúrar og myndbandsverk. Jónína var útnefnd bæjarlistamaður Hafnarfjarðar árið 2007.
mynd tengd atburði: List og leikur - ratleikur fyrir alla fjölskylduna
30. maí - 30. maí 2009  kl. 14 á Víðistaðatúni

List og leikur - ratleikur fyrir alla fjölskylduna

Safnfræðslan heldur út í góða veðrið á Björtum Dögum og verður leiðsögn um listaverkin í höggmyndagarðinum á Víðistaðatúni laugardaginn 30. maí kl. 14.
Þetta er hugsað svo öll fjölskyldan geti tekið þátt og er ókeypis.
mynd tengd atburði: List og leikur - ratleikur fyrir alla fjölskylduna
30. maí - 21. ágúst 2009  

List og leikur - ratleikur fyrir alla fjölskylduna

Hér er hægt að nálgast ratleikinn List og leikur en Hafnarborg stóð fyrir því á Björtum Dögum, menningarhátíð í Hafnarfirði 28. maí - 7. júní. Ratleikurinn er hugsaður fyrir alla fjölskylduna og er gerður í kringum höggmyndagarðinn á Víðistaðatúni í Hafnarfirði. Æskilegast er að byrja leikinn hjá Skátaskálanum og auðvelt að leggja bílnum við Hjalla...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Listamannsspjall
24. maí - 24. maí 2009  með listamanninum kl. 15

Listamannsspjall

Myndlistarmaðurinn Guðný Guðmundsdóttir tekur þátt í leiðsögn um sýninguna sína en þar getur að líta teikningar og skúlptúra. Allir velkomnir og ókeypis.
Sverrisalur.
mynd tengd atburði: Veðurstofuspjall
10. maí - 10. maí 2009  með listamanninum kl.15

Veðurstofuspjall

Guðrún Kristjánsdóttir mun ásamt Oddnýju Eir Ævarsdóttur heimspeking vera með óformlegt veðurstofuspjall í tengslum við sýninguna sína Veðurskrift. Guðný hefur í list sinni fjallað um síbreytileg áhrif veðurfars á land og menn. Allir velkomnir. Ókeypis.


Um Oddnýju:
Oddný Eir Ævarsdóttir(1972) nam heimspek...
>>MEIRA

mynd tengd atburði: Umræður um Veðurskrift
07. maí - 07. maí 2009  kl. 18

Umræður um Veðurskrift

Á fimmtudagskvöld verða skemmtilegar pallborðsumræður í umsjón Oddnýjar Eir Ævarsdóttur heimspekings, Péturs Gunnarssonar rithöfundar, Guðna Tómassonar dagskrárgerðarmanns og Guðrúnar Kristjánsdóttur um verk hennar á sýningunni í Hafnarborg sem nú stendur yfir. Ókeypis og allir velkomnir.
mynd tengd atburði: Fjölskylduleiðsögn
26. apríl - 26. apríl 2009  kl. 14

Fjölskylduleiðsögn

Fjölskylduleiðsögn í Hafnarborg um sýninguna Veðurskrift verk eftir Guðrúnu Kristjánsdóttur kl. 14. Allir velkomnir og ókeypis.
mynd tengd atburði: Listamannsspjall
19. apríl - 19. apríl 2009  kl. 15

Listamannsspjall

Guðrún Kristjánsdóttir myndlistarmaður tekur þátt í leiðsögn um sýninguna sína Veðurskrift. Ókeypis og allir velkomnir.
mynd tengd atburði: Listamannsspjall
15. mars - 15. mars 2009  kl. 15

Listamannsspjall

Helgi Gíslason myndhöggvari tekur þátt í leiðsögn um sýninguna sína VERUND. Á sýningunni eru teikningar, lágmyndir og skúlptúrar. Ókeypis aðgangur.
Sjá nánar hér
mynd tengd atburði: Listsmiðja
01. mars - 01. mars 2009  fyrir börn og foreldra

Listsmiðja

Listsmiðja fyrir börn og foreldra um sýninguna VERUND - verk eftir Helga Gíslason frá 14-16. Allir velkomnir, aðgangur ókeypis.
mynd tengd atburði: Leiðsögn um sýninguna Þættir
08. febrúar - 08. febrúar 2009  með listamanninum kl.15

Leiðsögn um sýninguna Þættir

Björg Þorsteinsdóttir tekur þátt í leiðsögn um sýninguna sína Þættir. Á sýningunni eru málverk, teikningar og skúlptúrar þar sem listakonan teflir saman efnum og tækni á nýstárlegan hátt.
Sýningin hefur fengið góða umsögn og aðsókn, ókeypis aðgangur.
Sjá nánar hé...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Leiðsögn um sýninguna Íslenskir listamenn
25. janúar - 25. janúar 2009  með listamanninum kl. 15

Leiðsögn um sýninguna Íslenskir listamenn

Jónatan Grétarsson tekur þátt í leiðsögn um sýninguna sína Íslenskir listamenn. En hann tók yfir hundrað ljósmyndir af listamönnum á öllum aldri og úr öllum listgreinum fyrir sýninguna en af þeim eru rúmlega 40 til sýnis.  Sýningin hefur vakið mikla athygli og fengið góða aðsókn. Ókeypis aðgangur.
mynd tengd atburði: Listsmiðja
14. desember - 14. desember 2008  fyrir börn og foreldra

Listsmiðja

Opin listsmiðja verður í Hafnarborg fyrir börn og foreldra frá kl.14-16. Sýningin Sjórinn og sjávarplássið verður skoðuð og notuð sem innblástur í eigin sköpun. Auður Vésteinsdóttir safnakennari mun leiða listsmiðjuna. Tilvalið að koma við í safninu á leið í jólaþorpið. Allir velkomnir, ókeypis aðgangur.
mynd tengd atburði: Kærleikskúlan 2008
05. desember - 19. desember 2008  til sölu í Hafnarborg

Kærleikskúlan 2008

Fyrsta Kærleikskúlan kom út árið 2003 og reið Erró á vaðið með verkinu 2 MÁLARAR ári síðar var það Ólafur Elíasson með AUGAÐ, þá Rúrí með verkið ÁN UPPHAFS - ÁN ENDIS og þar á eftir Gabríela Friðriksdóttir með verk sitt SALT JARÐAR. Í fyrra var það svo Eggert Pétursson sem skreytti kúluna með verkinu HRINGUR. En nú eru það stöllurnar í Gjörningaklú...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Leiðsögn um sýningarnar
23. nóvember - 23. nóvember 2008  Sjórinn og sjávarplássið og Charlottenborgarárin

Leiðsögn um sýningarnar

Sýningarnar Sveinn Björnsson - Sjórinn og sjávarplássið og Charlottenborgarárin – Tækifæri og örlög voru opnaðar í Hafnarborg, menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar s.l. laugardag. Erlendur Sveinsson safnstjóri Sveinssafns mun annast leiðsögn um sýningarnar nk. sunnudag 23. nóvember kl.15.
Á sýningunni Sjórinn og sjávarplássið eru val...
>>MEIRA

mynd tengd atburði: Barnastund og leiðsögn
28. október - 02. nóvember 2008  Listsmiðja fyrir börn og foreldra

Barnastund og leiðsögn

Sunnudaginn 2. nóvember verður mikið um að vera í Hafnarborg. Klukkan 15 verður sérfræðileiðsögn um sýninguna Tveir módernistar – Þorvaldur Skúlason og Sigurjón Ólafsson og kl. 14 – 16 verður listsmiðja fyrir börn þar sem verk meistaranna verða skoðuð og síðan sest niður og hún notuð sem innblástur við að búa til eitthvað spennandi. Gunnhildur Þórð...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Leiðsögn um sýninguna Tveir Módernistar
19. október - 19. október 2008  með Birgittu Spur

Leiðsögn um sýninguna Tveir Módernistar

Um þarsíðustu helgi var opnuð í Hafnarborg - menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar sýningin Tveir módernistar - Sigurjón Ólafsson og Þorvaldur Skúlason. Sýningin gefur einstaka innsýn í feril Sigurjóns Ólafssonar myndhöggvara og Þorvaldar Skúlasonar listmálara. Þeir voru í hópi framsæknustu listamanna sinnar samtíðar og á rúmlega hálfrar a...
>>MEIRA

mynd tengd atburði: Björgunarafrekið við Látrabjarg
12. september - 12. september 2009  kl. 16

Björgunarafrekið við Látrabjarg

Eftir Óskar Gíslason sem fjallar um breska togarann Dhoon er strandaði á Vestfjörðum árið 1947 og hvernig íslenskir bændur björguðu skipverjunum hetjulega í óveðri. Hafnarborg er í samstarfi við Kvikmyndasafn Íslands í tengslum við sýninguna Lífróður um að sýna kvikmyndir um hafið. Bæjarbíó, Strandgata 6, Hafnarfirði.

Heim

Heim
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is