Guðrún Kristjánsdóttir mun ásamt Oddnýju Eir Ævarsdóttur heimspeking vera með óformlegt veðurstofuspjall í tengslum við sýninguna sína Veðurskrift. Guðný hefur í list sinni fjallað um síbreytileg áhrif veðurfars á land og menn. Allir velkomnir. Ókeypis.
Um Oddnýju:
Oddný Eir Ævarsdóttir(1972) nam heimspeki við Háskóla Íslands og lauk þaðan Mastersgráðu í stjórnmálaheimspeki. Hún lauk minni doktorsgráðu frá Sorbonne-háskóla í PArís og vinnur að doktorsritgerð í Ehess-skóla í París, auk rannsóknar á íslenskum safnavettvangi. Oddný Eir hefur starfað á vettvangi skáldskapar og myndlistar um nokkura ára skeið, gaf út sjálfsævisögulegu skáldsöguna Opnun Kryppunnar (2004), hefur þýtt og ritstýrt bókverkum og unnið að myndlistaratburðum og rak m.a. myndlistarrými í New York og Reykjavík (Dandruff Space) ásamt Ugga Ævarssyni, fornleifafræðingi. Saman reka þau útgáfufélagið Apaflösu og unnu m.a. bókverk fyrir Vatnasafnið í Stykkishólmi. Hluta sýningar Guðrúnar Kristjánsdóttur,“Veðurskrift”, vinnur hún í samstarfi við útgáfufélagið Apaflösu. Oddný Eir starfar nú sem ritstjóri vefsins Náttúra.info
| Hafnarborg
Menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar Strandgata 34 220 Hafnarfjörður Ísland |
Opið alla daga kl. 12–17 og fimmtudaga til kl. 21. Lokað á þriðjudögum. www.hafnarborg.is hafnarborg@hafnarfjordur.is 585 5790 |