Um þarsíðustu helgi var opnuð í Hafnarborg - menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar sýningin Tveir módernistar - Sigurjón Ólafsson og Þorvaldur Skúlason. Sýningin gefur einstaka innsýn í feril Sigurjóns Ólafssonar myndhöggvara og Þorvaldar Skúlasonar listmálara. Þeir voru í hópi framsæknustu listamanna sinnar samtíðar og á rúmlega hálfrar aldar starfsferli sínum beindu þeir nýjum straumum inn í íslenska myndlist á 20. öld. Birgitta Spur safnstjóri Listasafns Sigurjóns Ólafssonar mun hafa leiðsögn um sýninguna næstkomandi sunndag 19. október kl.15. Sýningin er samstarfsverkefni Hafnarborgar, Listasafns Sigurjóns Ólafssonar og Listasafn Háskóla Íslands en verk Þorvaldar eru úr safneign Háskólans og þau sjaldan sýnd í einni heild eins og nú.
Allir eru hvattir til að koma og er leiðsögnin ókeypis og engin aðgangseyrir inn í safnið.
| Hafnarborg
Menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar Strandgata 34 220 Hafnarfjörður Ísland |
Opið alla daga kl. 12–17 og fimmtudaga til kl. 21. Lokað á þriðjudögum. www.hafnarborg.is hafnarborg@hafnarfjordur.is 585 5790 |