Dagskrá málþingsins:
Ólöf K. Sigurðardóttir, forstöðumaður Hafnarborgar,
Ávarp um hafið og sýninguna Lifróður
Kristinn Schram, forstöðumaður Þjóðfræðistofu
Lagt úr höfn
Ingibjörg Þórisdóttir, dramatúrg:
“Logn er fyrir lyddur”: íslensk leikrit og hafið
Terry Gunnell, þjóðfræðingur:
Innrás hinna utanaðkomandi dauðu: sagnir um sjórekin lík á Íslandi
Sigurjón B. Hafsteinson, mannfræðingur:
Ótti af hafi
HLÉ
Úlfhildur Dagsdóttir, bókmenntafræðingur (með tónlistarflutningi Svavars Knúts):
“Og nýja í næstu höfn...”: staða og ímynd kvenna í sjómannalögum
Haraldur Jónsson, myndlistarmaður:
Að ganga í sjóinn. Vangaveltur um það sem umkringir okkur
Hlynur Hallsson:
Tungumál, stjórnmál, sjómennska og myndlist
Dorothée Kirch og Markús Þór Andrésson, sýningarstjórar,
Sagt frá sýningunni
Spjall með fyrirlesurum og aðstandendum sýningarinnar
Nánar um erindin:
Sigurjón B. Hafsteinson, mannfræðingur og lektor í safnafræði við Háskóla Íslands:
Ótti af hafi
Í þessu erindi mun Sigurjón greina frá sársaukafullri reynslu af því að veltast umá hafinu um borð í togara og tengja það við leit sína að skilningi á þeirri reynslu. Hann mun leita í smiðju spekinga á borð við Arjun Appadurai, Zygmunt Bauman og Paul Virilio, en þeir hafa hver með sínum hætti fjallað um ótta og þátt hans í samtímanum.
Ingibjörg Þórisdóttir, dramatúrgur, gagnrýnandi og verkefnastjóri við Hugvísindasvið HÍ:
Logn er fyrir lyddur: íslensk leikrit og hafið
Fjallað verður um nokkur íslensk leikrit sem fjalla sérstaklega um hafið, fólkið sem býr í nábýli við það og jafnvel í Djúpinu sjálfu. Gerður verður samanburður á orðfæri og efnistökum leikritanna sem skrifuð eru á síðustu sjötíu árum eða 1939 til 2009.
Haraldur Jónsson, myndlistarmaður:
Að ganga í sjóinn. Vangaveltur um það sem umkringir okkur
Fljótandi spjall inn og út úr landhelgi.
Terry Gunnell, þjóðfræðingur og dósent í þjóðfræði við Háskóla Íslands
Innrás hinna utanaðkomandi dauðu: sagnir um sjórekin lík á Íslandi
Erindið fjallar um sagnir um sjórekin lík erlendra sjómanna á Íslandi og draugagang sem tengist þeim. Ljóst er að viðbrögð manna við erlend líkum var ólík viðbrögðum þeirra við líkum innlendra manna. Hin fyrrnefndu truflaðu tilveru manna margvíslega. Spurningin er af hverju, og hvað það segir um heimsmynd Íslendinga fyrr á öldum.
Hlynur Hallsson, myndistarmaður:
Tungumál, stjórnmál, sjómennska og myndlist
Málfar íslenskra stjórnmálamanna í hruninu vakti eftirtekt. Afturhvarf til fortíðar, kalmennska og sjómannamálið sem stjórnmálamenn dustuðu rykið af þótti viðeigandi á þessum síðustu og verstu tímum. Myndlistin tekur á málinu.
Úlfhildur Dagsdóttir, bókmenntafræðingur og Svavar Knútur, tónlistarmaður
“Og nýja í næstu höfn”
Fjallað verður um stöðu og ímynd kvenna í sjómannalögum og flutt brot úr lögum á borð við “Ship-oh-hoj”; “Einsi kaldi”; og “Kútter frá Sandi”.
Um Þjóðfræðistofu
Þjóðfræðistofa er rannsóknarstofnun og fræðasetur sem sinnir rannsóknum og miðlun á þjóðfræði og tengdum greinum jafnt innanlands sem utan. Innan ramma Þjóðfræðistofu er unnið að rannsóknar- og miðlunarverkefnum um íslenska þjóðfræði og margvíslegum samvinnuverkefnum á sviði fræða, menningar og lista. Fræðasetrið stendur fyrir viðburðum bæði á höfuðstöðvum sínum á Ströndum sem annars staðar á landi. Kristinn Schram þjóðfræðingur er forstöðumaður Þjóðfræðistofu og stundakennari við Háskóla Íslands.
sjá frekar hér
| Hafnarborg
Menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar Strandgata 34 220 Hafnarfjörður Ísland |
Opið alla daga kl. 12–17 og fimmtudaga til kl. 21. Lokað á þriðjudögum. www.hafnarborg.is hafnarborg@hafnarfjordur.is 585 5790 |