Sýningarnar Sveinn Björnsson - Sjórinn og sjávarplássið og Charlottenborgarárin – Tækifæri og örlög voru opnaðar í Hafnarborg, menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar s.l. laugardag. Erlendur Sveinsson safnstjóri Sveinssafns mun annast leiðsögn um sýningarnar nk. sunnudag 23. nóvember kl.15.
Á sýningunni Sjórinn og sjávarplássið eru valin málverk Sveins Björnssonar (1925 – 1997) sem sýna vel hve nátengdur hann var sjónum og sjávarútvegi í listsköpun sinni. Sveinn hóf starfsævi sína sem sjómaður en hann hætti til sjós og gerði myndlist að meginviðfangsefni ævi sinnar. Charlottenborgarárin 1961 - 1968 – tækifæri og örlög er sýning með verkum eftir Svein Björnsson og samnemendur hans í Listakademíuna í Kaupmannahöfn en þeir sýndu saman á Charlottenborg á tímabilinu 1961 – 1968. Undirtitill sýningarinnar dregur fram að þó að tækifæri gefist til að helga sig listinni verður ekki vikist undan ölögunum sem oft hafa annað í huga.
Allir eru hvattir til að koma og er leiðsögnin ókeypis og engin aðgangseyrir inn í safnið.
| Hafnarborg
Menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar Strandgata 34 220 Hafnarfjörður Ísland |
Opið alla daga kl. 12–17 og fimmtudaga til kl. 21. Lokað á þriðjudögum. www.hafnarborg.is hafnarborg@hafnarfjordur.is 585 5790 |