Sýningarstjórarnir Dorthée Kirch og Markús Þór Andrésson munu annast leiðsögn um sýninguna Lífróður - föðurland vort hálft er hafið sunnudaginn 30. ágúst kl. 15. Þau hafa undanfarið vakið mikla athygli fyrir áhugaverð verkefni nú síðast á vegum Listahátíðar í Reykjavík í fjórum vitum í fjórum landshornum og framlag Íslands til Feneyjartvíæringsins. Aðgangur er ókeypis.