mynd tengd atburði: Kærleikskúlan 2008
05. desember - 19. desember 2008  til sölu í Hafnarborg

Kærleikskúlan 2008

Fyrsta Kærleikskúlan kom út árið 2003 og reið Erró á vaðið með verkinu 2 MÁLARAR ári síðar var það Ólafur Elíasson með AUGAÐ, þá Rúrí með verkið ÁN UPPHAFS - ÁN ENDIS og þar á eftir Gabríela Friðriksdóttir með verk sitt SALT JARÐAR. Í fyrra var það svo Eggert Pétursson sem skreytti kúluna með verkinu HRINGUR. En nú eru það stöllurnar í Gjörningaklúbbnum sem hanna kúluna á sinn hátta; heillandi þrjár rauðar varir.

Kærleikskúlan hefur frá því að hún kom fyrst út árið 2003 fengið frábærar viðtökur landsmanna. Hún er seld í desember ár hvert - um 15 daga,  sölutímabil er að ræða frá 5. - 19. desember.

Tilgangurinn með sölu Kærleikskúlunnar er að auðga líf fatlaðra barna og ungmenna, með því að efla starfsemi Reykjadals. Gera þannig fleirum mögulegt að njóta þar ævintýra tilverunnar í hópi með jafnöldrum – eignast vini og dýrmætar minningar.
Biskup  Íslandi herra Karl Sigurbjörnsson hefur ávallt blessað Kærleikskúluna blessaður sé sá

Ár hvert fær Kærleikskúlan nýtt útlit - og er verkið í höndum fremstu listamanna þjóðarinnar. Í grunninn er Kærleikskúlan tær eins og kærleikurinn - með borða í rauðum lit, lit jólanna og kærleikans. Kærleikskúlan er blásin og eru því engar tvær kúlur nákvæmlega eins, en allar fallegar hver á sinn hátt.
Kærleikskúlan kemur í kassa og fylgir henni bæklingur. Litir bæklinsins eru svartur og silfraður. Svartur táknar árstímann og silfraður birtuna sem er svo lýsandi fyrir boðskap jólanna.

nánari upplýsingar í síma 5855790 eða á www.slf.is


Heim

Heim
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is