Hafnarborg efnir til bókakynningar en þrír rithöfundar lesa úr bókum sínum en einnig verða kynntar tvær nýjar útgáfur sem tengjast sýningunum sem nú standa í Hafnarborg.
Höfundarnir sem lesa eru þær Ragna Sigurðardóttir, Oddný Eir Ævarsdóttir og Kristín Ómarsdóttir en einnig verða kynnar bækurnar Ofhlæði og Úrvalið.
Höfundarnir þrír tengjast allir myndlist á einn eða annann hátt og bók Rögnu Sigurðardóttur Hið fullkomna landslag gerist í heimi myndlistarinnar og tengist efni hennar málverkafölsunarmálinu. Bókin hefur fengið góðar viðtökur og hlaut einróma lof gagnýnenda Kiljunnar. Ragna hefur skrifað mikið um myndlist og er myndlistargagnrýandi Morgunblaðsins. Kristín Ómarsdóttir les úr bók sinni Hjá brúnni og Oddný Eir Ævarsdóttir les úr bók sinni Heim til míns hjarta. Báðar hafa Oddný og Kristín tengst myndlistaheiminum á margan hátt meðal annars skrifað um myndlist og myndlistamenn. Bókaútgáfurnar Ókeibæ kur og Sögur gefa út bækur sem tengjast yfirstandandi sýningum í Hafnarborg. Sögur ehf gefa út bókina Úrvalið – Íslenskar ljósmyndir 1866 – 2009 sem gerir skil sögu íslenskrar ljósmyndunar og er prýdd fjölda mynda og textum um sýninguna eftir Einar Fal Ingólfsson en hann er einnig sýningarstjóri sýningarinnar sem ber sömu yfirskrift. Bókaútgáfan Ókeibæ kur kynnir sína fyrstu útgáfu en það er bókin Ofhlæði sem fjallar um myndlistarmanninn Davíð Örn Halldórsson sem sýnir sýninguna sína Hvar er klukkan?.
Lesturinn hefst kl. 20 og verður í kaffistofu Hafnarborgar sem rekin er af Manni lifandi en þar er hægt að kaupa kvöldverð fyrir upplesturinn og léttar veitingar fram eftir kvöldi. Í Hafnarborg og Manni lifandi er opið til kl. 21 alla fimmtudaga.
sjá matseðil Manns lifandi hér
| Hafnarborg
Menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar Strandgata 34 220 Hafnarfjörður Ísland |
Opið alla daga kl. 12–17 og fimmtudaga til kl. 21. Lokað á þriðjudögum. www.hafnarborg.is hafnarborg@hafnarfjordur.is 585 5790 |