05. desember - 19. desember 2009
Kærleikskúlan 2009
Nú um jólin gefur Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra út Kærleikskúluna í sjöunda sinn. Tilgangur með sölu kúlunnar er að auðga líf fatlaðra barna og ungmenna, en ágóðinn rennur beint í starfssemi Reykjadals. Kærleikskúlan er til sölu í safnbúð Hafnarborgar.
Í ár er það listamaðurinn Hreinn Friðfinnsson sem leggur félaginu lið en hann er einn af fremstu listamönnum þjóðarinnar. Kærleikskúlan hans heitir Snerting. Verk Hreins eru mjög fágæt og því er mikill happafengur að fá Hrein til viðbótar við þá listamenn sem þegar hafa skreytt kúluna. Hreinn hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir list sína, má þar nefna finnsku Ars Fennica-verðlaunin (2000), önnur verðlaun Carnegie Art Award (2000) og heiðursverðlaun Myndstefs (2007) fyrir einstakt framlag sitt til íslenskrar myndlistar.
Kærleikskúlan er munnblásin og gerð í takmörkuðu upplagi, hver kúla er því einstök. Kúlunni er pakkað af starfsmönnum á vinnustofunni Ás sem er verndaður vinnustaður. Þau pakka kúlunni af einstakri natni og er mikil tilhlökkunin sem henni fylgir, enda segja þau að jólin byrji um leið og pökkunin hefst. Kúlan er framleidd í takmörkuðu upplagi og því vissara að tryggja sér eintak fyrr en seinna.
Sala Kærleikskúlunnar fer fram 5. - 19. desember og kostar kúlan 4.500 kr.