Í tilefni þess að framlag Íslands til Feneyjartvíæringsins 2009, Endalokin eftir Ragnar Kjartansson, er nú sýnt í Hafnarborg verður efnt til umræðu um tvíæringinn og þátttöku Íslands þar. Feneyjartvíæringurinn er einn mikilvægasti viðburður heims á sviði samtímalistar og hafa Íslendingar verið þátttakendur frá árinu 1960 þegar þeir Kjarval og Ásmundur Sveinsson voru fulltrúar landsins. Það fylgir því heiður og áskorun að vera valinn fulltrúi þjóðar á tvíæringum og nýlega var tilkynnt að þau Ólafur Ólafsson og Libia Castro verði fulltrúar Íslands árið 2011.
Ætíð spinnast umræður um þátttökuna, val fulltrúa, fjármögnun, skipulag, markmið og árangur. Á fimmtudaginn verður athyglinni einkum beint að þessum þáttum en umræðurnar eru skipulagðar í samstarfi við Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar sem hefur umsjón með tvíæringnum. Fluttar verða stuttar framsögur en síðan verða umræður með þátttöku listamanna og sýningarstjóra sem hafa reynslu af því að taka þátt. Framsögur verða fjórar Halldór Björn Rnólfsson, forstöðumaður Listasafns Íslands fjallar um sögu tvíæringsins og þátttökur Íslands, Þóroddur Bjarnarson formaður stjórnar Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar fjallar um framkvæmd verkefnisins, Guðný Helgadóttir deildarstjóri í mennta- og menningarmálaráðuneyti fjallar um markmið þátttöku og sýn ráðuneytisins á þýðingu verkefnisins, Auður Edda Jökusldóttir menningarfulltrúi utanríkisráðuneytis fjallar um tvíæringinn í samhengi íslenskar menningarkynningar erlendis. Auk þeirra verða þátttakendur í pallborði þau Markús Þór Andrésson og Dorothée Kirch sem voru sýningarstjórar Endalokanna, Hanna Styrmisdóttir sem var sýningarstjóri framlags Íslands árið 2007, Rúrí sem var fulltrúi Íslands 2003 og Finnbogi Pétursson sem var fulltrúi 2001.
Málþingið hefst kl. 20 og stendur til kl. 22. Sýningarnar verða opnar á meðan málþingið stendur en vanalega er opið til kl. 21 á fimmtudögum
| Hafnarborg
Menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar Strandgata 34 220 Hafnarfjörður Ísland |
Opið alla daga kl. 12–17 og fimmtudaga til kl. 21. Lokað á þriðjudögum. www.hafnarborg.is hafnarborg@hafnarfjordur.is 585 5790 |